NOCO Boost X GBX45 byggir á algerlega nýrri tækni, tækið er uppgefið 1250A og veitir öflugra start í hvert skipti. GBX45 er handhægt starttæki fyrir 12V rafgeyma, hentar fyrir bíla, bifhjól, vinnuvélar, trukka og báta. Fyrir bensínvélar allt að 6,5 L eða díselvélar allt að 4,0 L..
GBX45 er með USB og USB-C tengjum og þú getur hlaðið hratt og vel nánast öll tæki s.s. snjallsíma, spjaldtölvur, heyrnartól o.fl. eða til þess að knýja 12V tæki s.s. dekkjapumpu og Power inverter o.fl.. Tækið má einnig nota sem ljósgjafa, það inniheldur LED ljós sem er 100 lúmen með mismunandi stillingum.
Endurhleðslutími ýmissa tækja með Genius Boost X GBX45 starttækinu
- Miðað við 2,5W hleðslu: 16 klukkustundir
- Miðað við 5W hleðslu: 8 klukkustundir
- Miðað við 10W hleðslu: 4 klukkustundir
Rakvörn GBX45 (með öll port/tengi lokuð): IP65
Hér má sjá hvernig á að nota NOCO GBX45 starttækið
Ítarlegri upplýsingar í fylgiskjölum