Smurolía

Finndu réttu smurolíuna fyrir bílinn þinn með því að slá inn skráningarnúmer í varahlutaleitina. Rétt smurolía tryggir góða smurningu, dregur úr sliti og stuðlar að öruggum og áreiðanlegum rekstri vélarinnar.
Hjá Poulsen finnur þú fjölbreytt úrval smurolíu frá TotalEnergies, Valvoline og ELF fyrir fólksbíla, mótorhjól, atvinnubíla og vinnuvélar. Úrvalið nær meðal annars til 0W-30, 5W-30, 5W-40, 10W-30, 10W-40 og 20W-50 smurolíu.

Hvaða smurolía hentar?

Fylgdu alltaf leiðbeiningum framleiðanda ökutækisins við val á seigjustigi og stöðlum. Þótt tvær olíur beri sama seigjustig geta þær uppfyllt ólíkar ACEA-, API- og framleiðendakröfur. Ef þú ert ekki viss getur starfsfólk Poulsen aðstoðað þig við að finna réttu olíuna.

Smurolía