Trillur og vagnar

Trillur og vagnar fyrir verkstæðið

Hér finnur þú trillur og vagna sem auðvelda flutning á þungum hlutum á verkstæðinu, í bílskúrnum og á lagernum, flest frá Sealey.

Bílatrillur og dekkjatrillur

Bílatrillur eru settar undir dekkin svo hægt sé að færa bíl til á gólfinu, til dæmis bilaðan bíl eða bíl sem þarf að koma fyrir í þröngu rými. Burðargetan er frá 454 kg upp í 680 kg á hverja trillu og sumar eru með fótstýrðum vökvatjakki. Dekkjatrillur auðvelda að færa og geyma dekkjagang eða setja þungt hjól undir. Einnig eru til mótorhjólatrillur fyrir hjól með hliðar- eða miðjustand.

Hilluvagnar og tunnutrillur

Verkstæðisvagnar með þremur hillum halda verkfærum og varahlutum við höndina. Tunnutrillur fást fyrir 50 og 200 lítra tunnur og fötuvagnar fyrir 20 til 60 kg fötur.

Sjá einnig hjólatjakka, búkka og annan lyftibúnað og tjakka.

Pallvagn með uppréttu handfangi – Sealey CST992
Hjólavagn 300kg

Sealey CST992. Pallvagn með 300 kg burðargetu, gúmmíklæddum 605 × 910 mm palli og fellanlegu handfangi.

Vnr: 066 cst992Sealey
VæntanlegSjá nánar