Bílaperur fyrir allar gerðir ökutækja
fyrir fólksbíla, vörubifreiðar, atvinnu- og hobbýtæki. Við eigum gott úrval af 12V og 24V perum meðal annars frá Bosch og Flösser.
Þarf ég að skpta um báðar perur á sama tíma?
Ef um er að ræða aðalljósaperurnar að framan eða aftan eða þokuljós þá mælum við eindregið með því að skipta um báðar perurnar á sama tíma þar sem þær eru með sama líftíma. Einnig má nefna að perur dofna eftir því sem þær eldast og því er ljósmagnið í eldri perum minna en í nýjum perum þannig að það getur orðið mismunandi lýsing frá bílnum.
Má snerta peruna sjálfa með fingrunum?
Stutta svarið við því er "Nei". Þegar þú snertir glerið á perunni með fingrunum þá skilur þú eftir húðfitu á glerinu. Þegar peran er í notkun einangrar húðfitan peruna sem veldur meiri hita innanvert í þeirri peru og styttir líftíma hennar töluvert mikið.
Þess vegna mælum við með því að þú notir hanska þegar þú skiptir um peruna og forðist það í lengstu lög að snerta peruna sjálfa.