Demparaolía

Demparaolía er ætluð fyrir framgaffla og vökvadempara mótorhjóla. Hún smyr hreyfanlega hluti fjöðrunarinnar og stuðlar að jafnri og stýrðri dempun.
Hjá Poulsen finnur þú ELF Moto Fork Oil í mismunandi seigjustigum fyrir götu- og torfæruhjól, þar á meðal 2,5W, 5W, 10W og 15W.

Veldu rétta seigju

Seigja demparaolíunnar hefur áhrif á virkni fjöðrunarinnar. Notaðu ávallt seigjustig og magn sem framleiðandi mótorhjólsins eða fjöðrunarbúnaðarins mælir með. Rangt seigjustig eða olíumagn getur breytt hegðun fjöðrunarinnar og aksturseiginleikum hjólsins.

Demparaolía