Grjót og ryðvörn

Ryðvörn og grjótvörn fyrir bílinn

Salt, raki og steinkast á íslenskum vegum fara illa með undirvagn og sílsa, og regluleg ryðvörn lengir líftíma bílsins. Hér finnur þú ryðvarnarefni, grjótvörn og holrúmsvax frá Tectyl, Fluid Film, K2 og MOTIP, ásamt úðabyssum til að bera efnin á.

Hvaða efni fer hvert?

  • Undirvagnsvörn, til dæmis Tectyl Bodysafe, Tectyl Underbody og K2 Durabit, myndar verndarlag undir bílnum.
  • Holrúmsvax fer inn í sílsa, hurðir og önnur holrúm þar sem raki safnast fyrir.
  • Grjótvörn ver svuntur, sílsa og neðri hluta yfirbyggingar gegn steinkasti. MOTIP Stone Chip má mála yfir.
  • Fluid Film er þunnfljótandi ryðvörn með smurgildi sem smýgur vel inn í samskeyti.

Úðabyssur fyrir ryðvörn

Fyrir stærri verk eru loftknúnar ryðvarnarbyssur frá Sealey og K2 með úðabarka sem nær inn í holrúm. Þær þurfa loftpressu. MOTIP grjótvörn fæst einnig á 1 lítra brúsum fyrir loftbyssu.

Áður en ryðvarið er þarf að fjarlægja laust ryð. Sjá ryðeyði og ryðbreytiefni.