Hjólkoppar

Hjólkoppar á stálfelgur

Hjólkoppar fríska upp á útlit bílsins og fela stálfelgurnar. Hjá Poulsen færðu hjólkoppa frá Petex í mörgum útfærslum, silfraða, svarta og tvílita, fjóra saman í setti.

Hvaða stærð af hjólkoppum þarf ég?

Stærð hjólkopps miðast við þvermál felgunnar í tommum, til dæmis 14″, 15″, 16″ eða 17″. Stærðina sérðu á hlið dekksins: í merkingunni 195/65 R15 er felgan 15 tommur. Hjólkoppurinn þarf að vera sömu stærðar og felgan.

Þrif á felgum og dekkjum: sjá hreinsiefni fyrir felgur og dekk. Fleira í bílinn er undir aukahlutum fyrir bílinn.