Valvoline Airco Refresher er lyktareyðandi hreinsisprey sem ætlað er fyrir A/C og loftstokka í bílum. Frískar upp loftgæðin í miðstöðvarkerfum fólksbirfreiða og fleiri ökutækjum sem eru með miðstöðvarkerfi. Valvoline Airco Refresher er mjög einfalt í notkun.
Leiðbeiningar
- Settu bílinn í gang.
- Best er að taka frjókornasíuna úr bílnum og helst að skipta henni út fyrir nýja frjókornasíu.
- Stilltu miðstöðvarkerfið á inniloft.
- Stilltu hitann á lægstu stillingu.
- Settu miðstöðina á mesta blástur.
- Hristu brúsann mjög vel.
- Settu hann á mitt gólfið aftan við framsætin og smelltu hnappnum á brúsanum niður (hann festist niðri).
- Hafðu allar hurðar lokaðar í 15 – 20 mínútur.
- Þegar þessu er lokið opnið allar hurðar og loftið út.
Á myndbandinu hér að neðan má sjá hvernig þetta er gert.