Autosmart Colour Off er öflugur handhreinsir, fjarlægir meðal annars málningu, lakk, blek og límrestar. Inniheldur engin skaðleg leysiefni, inniheldur skrúbbkorn til að fjarlægja erfið óhreinindi, hentar til daglegrar notkunar.
Leiðbeiningar: berið Colour Off á þurrar hendur. Nuddið vel saman sem og á milli fingra, bætið smá vatni saman við og haldið áfram að nudda. Hreinsið vel með vatni. Við mælum með notkun á handáburði eftir notkun á handhreinsum almennt.