Loftkerfaolía

Loftkerfaolía er ætluð til smurningar á loftknúnum verkfærum og þrýstiloftsbúnaði, svo sem hólkum, ventlum, höggverkfærum og bergborum. Rétt smurning dregur úr núningi og sliti og hjálpar til við að verja búnað gegn raka og tæringu.
Hjá Poulsen finnur þú Interflon Lube PN fyrir loftkerfi, ventla og loftknúin verkfæri ásamt TotalEnergies Pneuma fyrir höggverkfæri, loftbora og krefjandi iðnaðarnotkun. Einnig er í boði matvælahæf loftkerfaolía fyrir búnað þar sem tilfallandi snerting við matvæli getur átt sér stað.

Veldu olíu eftir búnaði og seigju

Loftkerfaolíur eru fáanlegar í mismunandi ISO-seigjustigum. Veldu seigju og vörutegund samkvæmt kröfum framleiðanda búnaðarins, vinnuhita og álagi.
Loftkerfaolía fyrir verkfæri og ventla er ekki sjálfkrafa hentug sem loftpressuolía. Loftpressur geta þurft sérstaka olíu eftir gerð og forskrift framleiðanda.

Loftkerfaolía