Sætishlífar og sætisyfirbreiðslur

Sætisáklæði og sætishlífar í bíla

Sætisáklæði verja sætin í bílnum gegn sliti, óhreinindum og blettum og gefa innréttingunni nýtt útlit. Hjá Poulsen færðu sætisáklæði frá Petex í ýmsum litum og útfærslum, bæði heil sett og stök áklæði.

Passa sætisáklæðin í bílinn minn?

Flest áklæðin eru alhliða (universal) og passa í algengar gerðir sæta. Ef sætin eru með hliðarloftpúða skaltu velja áklæði sem er gert fyrir slík sæti. Það kemur fram í lýsingu hverrar vöru.

Sætishlífar fyrir verkstæði

Einnota og fjölnota sætishlífar, meðal annars 3M Slip’n Grip og hlífar frá Sealey, vernda sæti viðskiptavina á meðan unnið er í bílnum. Í flokknum eru einnig stýrishlífar.

Fleiri vörur í bílinn finnur þú undir aukahlutum fyrir bílinn.