Vaxbón sem sléttir og verndar. Má nota í beinu sólarljósi og á heitt lakk. Veitir jafnara lakkyfirborð og langvarandi gljáa á auðveldan hátt. Bónar og verndar í senn. Fyrir hámarksgljáa og vörn er mælt með að nota efnið a.m.k. tvisvar á ári.
Notkunarleiðbeiningar:
- Þvoið bílinn með SONAX glansþvottalegi.
- Hristið brúsann fyrir notkun.
- Berið lítið magn á bílinn með mjúkum klút eða svampi og dreifið jafnt yfir allt yfirborð bílsins.
- Látið þorna í stutta stund og strjúkið svo yfir með SONAX míkrófíberklúti.
Athugið: Notist ekki á ómálaða plasthluta bílsins. Verndið gegn frosti.