ColorMark Linemarker er hágæða merkisprey með góða og langvarandi endingu, hægt að fá Line Protection sem vörn ofan á Linemarker sem lengir líftíma merkinga til muna. ColorMark Linemarker er notað víða í vegagerð sem og í iðnaði hvort sem um er að ræða byggingar- og mannvirkjagerð, byggingarsvæði og vegagerð. Úðastúturinn á Linemarker er sérstaklega gerður til að búa til skarpar línur.
Má nota bæði innandyra sem utandyra.
Hægt er að fá aukabúnað svo sem merkibyssur svo ekki þurfi að beygja við hverja merkingu. ColorMark Spotmarker býr ekki til varanlega merkingu, það er auðveldlega hægt að þrífa hana af þeim yfirborðsfleti sem henni hefur verið sprautað á.
Notkunarleiðbeiningar
- Hristið brúsann vel í c.a. 3 mínútur fyrir notkun.
- Gerið prufusprautun á einhvern flöt.
- Sérstakur úðastútur býr til skarpar línur þegar sprautað er.
- Úðið úr 5-15cm fjarlægð á þann flöt sem á að merkja.
- 500ml duga á c.a. 40 metra miðað við 10cm breiðar línur.
- Þurrktími miðast alltaf við umhverfisáhrif en m.v. +20°C og 50% raka
- Rykþurrt 10 mínútur
- Snertiþurrt: 30 mínútur.
- Alveg þurrt: 24 klst.
Best er að nota ColorMark Spotmarker í +10°C til +25°C hita.
Hér fyrir neðan má sjá þá liti sem við bjóðum upp á í ColorMark Linemarker spreyinu.