Lucas Oil Transmission Fix er sérhannað efni til að leysa algeng vandamál í sjálfskiptingum. Með öflugri samsetningu eykur það virkni, stöðugleika og endingu sjálfskiptinga með einföldum hætti. Lucas Oil Transmission Fix er hentugt fyrir allar gerðir sjálfskiptinga, bæði nýjar og eldri. Einfaldlega bætið efninu í skiptinguna samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum við olíuskipti eða þegar vandamál koma fram.
Tryggðu mýkri skiptingu, minni viðhaldskostnað og aukið öryggi með Lucas Oil Transmission Fix.
Helstu kostir:
- Stöðvar leka og þéttir pakkningar og pakkdósir.
- Dregur úr rykkingum, skrið og titringi í skiptingunni.
- Endurheimtir eðlilega virkni og mýkir skiptingu milli gíra.
- Minnkar hita og slit á skiptingarhlutum.
- Eykur endingu sjálfskiptingarinnar og kemur í veg fyrir dýrari viðgerðir.
Leiðbeiningar
Til að tryggja lengri endingu og betri hitastjórnun skal bæta einni flösku af Lucas Transmission Fix við hverja olíuskiptingu (á um það bil 48.000 km eða 30.000 mílna fresti; skoðið eigandahandbókina).
Bætið efninu við núverandi sjálfskiptivökva þegar vélin er heit og í hægagangi eða í þegar þú skiptir um sjálfskiptivökva. Önnur flaska gæti verið nauðsynleg fyrir stærri eða mjög slitnar skiptingar.
Minni skiptingar nota um það bil 355 ml.
Lucas Transmission Fix virkar ekki ef skiptingin hefur bilaða innri hluti eða ef bönd/kúplingar eru alveg ónýt.
ATHUGIÐ: Ekki ætlað fyrir CVT/DCT/DSG skiptingar eða olíur þeirra.