3M 5935 er filter / grisja (forfilter) sem ætlaður er utanvert á 3M kolafiltera. 5935 filterarnir eru sett í grind / haldara (sjá vörunúmer: 501) sem síðan smellist á 3M kolafilterana. Hægt er að nota þessa filtera / grisjur með bæði hálf og heilgrímum.
Uppfyllir eftirfarandi staðla
EN 143:2000 – CE Mark 0086 (EN 143:2000 P3 R)
Ítarlegri upplýsingar má sjá í fylgiskjölum
Notkun – Hvenær á að skipta um filter?
Endingartíminn á filternum er merktur inn á pakkann, ekki er ráðlagt að nota filtera sem komnir eru yfir á tíma þó svo þeir líti út fyrir að vera í lagi. Varðandi notkunartíma sem fellur innan þeirrar dagsetningar þá er erfitt að segja til um það fyrirfram. Þetta veltur allt á notkun og í hversu miklum óhreinindum, raka og ryki verið er að vinna í. Til viðmiðunar er gott að vera með eftirfarandi í huga:
Rykfilterar (agnsíur): Endurnýið rykfilterana er þegar öndun inn í gegnum grímuna fer að þyngjast.
Kolafilterar (gas- og gufusíur): Endurnýið kolafilterana þegar minnsta lykt eða bragð er farið að gera vart við sig inni í grímunni.
Filtera ber að geyma í lokuðum umbúðum, s.s. lásapoka eða vel þéttu boxi.