BIO-ACTIVE er mjög öflugt lyktareyðandi niðurbrotsefni sem ætlað í safntanka ferðasalerna (húsbílar, bátar, rútur), rotþrær og útikamra. BIO-ACTIVE sameinar næringarefni baktería með ensímum til að fjarlægja lykt og brjóta niður úrgang og klósettpappír. BIO-ACTIVE smyr ventla, hreinsar skynjara og kemur í veg fyrir uppsöfnun og stíflur.
BIO-ACTIVE inniheldur engin ilmefni né litarefni. BIO-ACTIVE inniheldur mjög öfluga formúlu sem er vistvæn og brotnar auðveldlega niður í náttúrunni og er því örugg til notkunar í ferðasalernum, útikömrum og í rotþróm.
Upplýsingar
- BIO-ACTIVE inniheldur engin ilmefni
- Brotnar niður í náttúrunni, 100% náttúruvæn
- Inniheldur ekki formeldahýð
- Brýtur niður úrgang og klósettpappír á áhrifaríkan máta
Leiðbeiningar fyrir ferðasalerni “Kasettuklósett” 20 – 30 lítrar. Miðað er við tæmingu á 3-4 daga fresti
- Setjið 0,5 – 1 lítra af vatni í safntankinn
- Bætið 60 ml af BIO-ACTIVE út í vatnið, athugð að hægt að sturta því niður eða blanda áður en það fer í tankinn.
- þessar leiðbeiningar miðast við 25 lítra safntank, margfaldið magnið miðað við stærð safntanks.
Leiðbeiningar fyrir safntanka húsbíla o.þ.h.:
- Tæmið safntank og setjið botnfylli af vatni í hann.
- Bætið BIO-ACTIVE í tankinn og miðið við stærð safntanks, magn kemur fram á brúsanum
- ATHUGIÐ! Því meira sem fer af vatni þess betur virkar BIO-ACTIVE