K2 Fluxo PRO er súr bílasápa sem er örugg til notkunar á keramik húðun og bílabón (vax). K2 Fluxo Pro gerir bílinn skínandi hreinan og endurheimtir gljáan aftur. K2 Fluxo er óblandað (þykkni) sem er súr sápa (pH ~4), efnið er búið til fyrir faglega notkun til umhirðu á bílum með keramik, kvarts og/eða bónhúð (vax). Einstök formúla, laus við óþarfa aukaefni, fjarlægir á áhrifaríkan máta óhreinindi, þar með talið steinefnaútfellingar s.s. kísil, kalk o.fl.. Endurheimtir húð og upprunalega vatnsfælni og djúpan gljáa umhirðuefna bílsins hvort sem það er keramik eða bón (vax). Fullkomið efni til að þrífa lakkið áður en varnarefni (keramik og bón(vax) eru sett á bílinn.
Blöndunarhlutföll
- Hefðbundin þrif: 10-50ml út í hverja 10 lítra af vatni
- Þrif á húðun (coati): 40-100ml út í hverja 10 lítra af vatni
- Forþvottur: 1:10-1:20
Notkunarleiðbeiningar
- Hreinsið bílinn með háþrýstidælu.
- Blandið sápuna miðað við hlutföllin hér að ofan.
- Setjið ekki á heitt yfirborð eða í beinni sól, þvoið á skuggsælum stað.
- Látið ekki þorna á yfirborðinu.
- Hreinsið vel með miklu vatni.