Evapo-Rust Rust Remover er ryðeyðandi hreinsiefni sem fjarlægir ryð án þess að þurfa að skrúbba, bursta eða slípa. Evapo-Rust er ekki ætandi fyrir stál og skemmir ekki brass, kopar, ál, gull, blý, títaníum, stál, pottjárn, járn, króm, lóðaða fleti, vínil, plast, gúmmí, sílikon, gler, kork eða timbur. Evapo-Rust ryðeyðir má nota aftur og aftur eða þar til sjáanleg virkni er búin. Hægt er að sigta notaða efnið og setja það á brúsa til notkunar aftur.
Evapo-Rust® hefur ekki neinn uppgefinn hillutíma (enga best fyrir dagsetningu).
Evapo-Rust® ryðhreinsirinn:
- Er ekki ertandi fyrir augu
- Er ekki ertandi fyrir húð
- Er ekki ertandi fyrir munn
- Er ekki eldfimt
- Er ekki sýra
- Inniheldur engin leysiefni
- Brotnar niður í náttúrunni
Notkunarleiðbeiningar:
Hreinsið allt lauslegt ryð ásamt olíu og fitu sem kann að vera á yfirborði hlutarins sem verið er að vinna með. Leggið hlutinn sem á að ryðhreinsa í t.d. plastbox eða plastkassa og látið hlutinn liggja í 20 mínútur. Athugið að mikið ryðgaðir hlutir gætu þurft allt upp í 24 klst eða jafnvel lengur. Takið hlutinn upp úr og skolið mjög vel með vatni og þurrkið hann vel, meðhöndlið hann strax með smurningu eða grunni og lakki eða þ.e.a.s. þeirri áferð sem á að fara á hann.




Hér má sjá myndband af notkun Evapo-Rust®
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.