Imron Elite – Frábær lausn fyrir stóra fleti
Imron Fleet Line Elite er tveggja þátta (2K) Polyurethane-lakk sem gerir það einstaklega slitsterkt, hannað sérstaklega fyrir stóra, slétta og liggjandi fleti þar sem útlit og áferð skipta mestu máli.
Af hverju Imron Elite?
Imron Elite er þynnra og flæðir betur en HDC sem gerir það að fullkomnu lakki þegar markmiðið er slétt áferð á stórum flötum:
- Einfalt að ná fallegri áferð, sérstaklega á þökum, hliðum og stórum plötum
- Mjög fallegt útlit, góð þekja og lítil efnisnotkun
- Hentar sérstaklega vel fyrir kassa-, tank- og flutningabíla þar sem sjónræn gæði skipta máli
- Jöfn áferð í 1,5 til 2.0 umferðum
- þrjú gljástig (glans, hálfmatt og matt)
Ábending
Cromax Imron Elite hentar einstaklega vel ofan á góðan Epoxy grunn, með því móti tryggirðu hámarks ryðvörn og bestu endinguna
- 040 645201000 Epoxy grunnur 4520 1L
- 040 604510502 Herðir 0451 fyrir 4520 Epoxy 0,5L
- 040 605051000 Þynnir standard 0505 1L
Blöndunarhlutföll á Imron Fleet Line Elite:
- Háglans (Glossy) 3:1: 0,4-0,7
- Hálfmatt (Satin Matt) 5:1:0,4-0,7
- Matt (Mat) 5:1:0,4-0,7



