Elephant YA er sterkbyggð skafttalía fyrir lyftingu, tog, strekkingu og klemmingu í hvaða stefnu sem er. Þétt bygging og sérstök ryðvarin húðun gera hana að góðum kosti í hörðu umhverfi — útgerð, námuvinnslu og utandyra.
Gírverkið er alveg lokað, sem eykur áreiðanleika og lækkar viðhaldskostnað. Vatnsheld og höggþolin hlíf ver gír og bremsu, og svarti grindarliturinn þolir rispur og ver gegn ryði.
Skiptihandfangið er einnar hreyfingar (one-touch), sem flýtir verulega fyrir í vinnu. Boltað gúmmígrip tryggir öruggt tak og sjálflæsandi bremsa heldur byrðinni í hvaða hæð sem er.
Helstu kostir
- Sinkhúðuð hleðslukeðja í gæðaflokki 10 (EN 818-7)
- Þétt bygging og lág eigin þyngd
- Áreiðanleg sjálflæsandi bremsa
- Krókar með öryggislokum
- Krókar svigna við ofálag í stað þess að bresta
- Einkaleyfisvarin stýring fyrir hleðslukeðju
- Tvöföld fjöður á hvorum gikk fyrir aukið öryggi
- Lokað gírverk og ryðvarin húðun — hentar í hörðu umhverfi
Tæknilegar upplýsingar
| Lyftigeta | 1.600 kg |
| Lyftihæð | 1,5 m |
| Hámarks handafl | 37 kg |
| Hleðslukeðja | 7,1 x 21,0 mm |
| Fjöldi keðjufalla | 1 |
| Byggingarhæð | 352 mm |
| Þyngd | 9,2 kg |
| REMA vörunúmer | 0208005 |
Dæmigerð notkun: Útgerð, námuvinnsla, iðnaður og vinna utandyra.
Staðlar og merkingar: EN 818-7, EN 13157 · CE-merkt






