Motpip Glue er glært límsprey sem hentar fyrir margskonar yfirborðsfleti s.s.pappír, pappa, timbur, vefnaðarvöru. Hentar bæði sem tímabundin sem og endanleg líming.
Notkunarleiðbeiningar
- Hreinsið yfirborðsflöt vel, hann þarf að vera laus við ryk, fitu og óhreinindi.
- Best er að nota efnið við 10-25°C hita.
- Úðið úr 25-30cm fjarlægð frá fletinum.
- Þekjið með jöfnu lagi af lími.
- Fyrir endanlega límingu: Úðið á bæði flötinn sem á að líma sem og á þann sem á að líma á og leyfið líminu að taka sig í 15 til 25 mínútur áður en fletirnir eru lagðir saman, þrýstið vel ofan á þegar þeir eru lagðir saman.
- Fyrir tímabundna límingu: Úðið á annan flötinn, leyfið líminu að taka sig í 5 til 10 mínútur áður en fletirninr eru lagðir saman.
- Þegar gljúpir fletir eru límdir, úðið í nokkrum lögum.
- Eftir notkun, þrífið stútinn á brúsanum mjög vel, snúið brúsanum á hvolf og úðið í 5 sekúndur, þetta hreinsar límið innan úr stútnum.