Drain B-Gon er mjög öflugur stíflubani / stíflueyðir í duftformi sem að hentar vel þar sem erfiðar stíflur eru og sérstaklega gerður til að leysa upp hár og fitu. Leysir upp hár, slím og sápuskán, hlandstein, eyðir ólykt. Skemmir ekki lagnir.
Áríðandi:
- Lesið alltaf leiðbeiningar fyrir notkun.
- Notist alls ekki með heitu vatni.
- Notist alls ekki með öðrum efnum.
Notkunarleiðbeiningar
Fjarlægið sem mest af vatni úr vatnslás (ef það er mögulegt), hellið c.a. 1/2 – 1 dl. af Drain B-Gon í niðurfallið. Haldið efninu frá ykkur þegar því er hellt í niðurfallið. Látið efnið standa í niðurfallinu í 60-90 sekúndur og að því loknu látið kalt vatn renna í niðurfallið í 5 mínútur.
Ef þörf er á, endurtakið ferlið eins oft og þarf þar til að það rennur vel í gegnum niðurfallið.
Við notkun á stíflueyðum og sterkum efnum þá bendum við á að það á alltaf að nota viðeigandi hlífðarfatnað við notkun þeirra s.s. gúmmíhanska, öryggisgleraugu og andlitsgrímu.
Varist það að vera með andlitið ofan viðVarist það að vera með höfuðið yfir niðurfallinu á meðan verið er að hella í það og hreinsun er í gangi. Athugið: Forðist alla snertingu við matvæli og svæði þar sem matvæli eru meðhöndluð og þrífið vel eftir meðferð.
pH gildi (m.v. 10% blöndu): 13-14 Inniheldur: 565 gr.