Interflon Power Wipes eru sterkar matvælavottaðar iðnaðarþurrkur / blautþurrkur sem innihalda mjög öflug hreinsiefni. Interflon Power Wipes eru auðveldar í notkun og hentugar í að þrífa verkfæri, vinnusvæði, véla- og varahluti o.fl.. Fjarlægir tjöru, blek, tóner, ryk, bremsuryk, sót, resin restar, límrestar, grasgrænku og meira að segja veggjakrot. Hentar sérstaklega vel þar sem verið er að vinna þar sem ekki er auðvelt aðgengi í vatn og hreinsiefni. Ómissandi í vinnubílinn eða bara í heimilisbílinn.
Inniheldur 90 stk blautþurrkur, dunkurinn er með góðu loki sem þéttir vel svo þurrkurnar þorni síður.
Interflon Power Wipes henta vel í ýmsan matvælaiðnað og eru matvælavottaðar NSF® (Class H1)