Sea Foam Motor Treatment er margnota bætiefni, það hentar til blöndunar saman við eldsneyti og þá bæði bensín og dísil vélar ásamt því að vera til blöndunar í smurolíu. Þegar efnið er notað í eldsneyti er mælt með að nota 1-2 flöskur af Sea Foam Motor Treatment á 5.000 km. fresti. Við notkun í smurolíu er hægt að bæta því beint út í smurolíuna á milli þess sem bíllinn er smurður, en það er best að bæta því út í smurolíuna c.a. 500 km fyrir smurningu og skipta þá um bæði smurolíu og smurolíusíu. Hér fyrir neðan má sjá hvernig efnið er notað í eldsneyti sem og út í smurolíu, einnig eru myndbönd sem sýna notkun þess.
Hvernig á að nota Sea Foam Motor Treatment í eldsneyti (bæði bensín og dísil)
Kostir
- Heldur eldsneytiskerfinu hreinu og stuðlar að lengri endingu.
- Hreinsar innspýtingar og blöndunga.
- Hreinsar ventla og útfellingar.
- Smyr og bætir gang.
Leiðbeiningar – Blöndun við eldsneyti
- Fyrir reglubundið viðhald: Settu 30ml út í hverja 4 lítra af eldsneyti.
- Fyrir hreinsun: 60ml út í hverja 4 lítra eldsneytis. Þess meira af Sea Foam því öflugari hreinsun færð þú.
- Bætið efninu ávallt á eldsneytistankinn fyrir áfyllingu.
- Fyrir eldsneyti á ökutækjum í geymslu: 30ml út í hverja 4 lítra af eldsneyti.
- Heldur eldsneytinu í lagi í allt að 2 ár í geymslu.
- Tvígengistæki: Setjið 60ml út í hverja 4 lítra af eldsneyti.
Hvernig á að nota Sea Foam Motor Treatment í smurolíu (bæði bensín og dísilvélar)
Kostir
- Stuðlar að betra olíuflæði
- Heldur olíukerfinu hreinu
Leiðbeiningar – Blöndun við smurolíu
- 1 flaska af Sea Foam Motor Treatmen 473ml dugar í allt að 15 lítra af smurolíu
- Hefðbundinn bíll er með 3,5 til 4 lítra af smurolíu og þá er c.a. 130ml út í smurolíuna.