Sealey Headlight Restoration Kit – Slípisett fyrir mött og gulnuð framljós
Eru framljósin á bílnum þínum orðin skýjuð, gulnuð, sand- og veðurblásin? Sealey Headlight Restoration Kit er slípisett til að pólera framljósin og gera þau eins og ný. Fyrir utan það að gulnuð og mött framljós eru lýti á bílnum þá er aðalatriðið að þetta dregur úr lýsingu framljósanna sem veldur hættu. Það er öryggisatriði að halda ljósunum hreinum og kristaltærum, bæði fyrir þig sem bílstjóra sem og fyrir þá sem þú ert að mæta í umferðinni.
Settið inniheldur allt sem þarf til þess að slípa og hreinsa 2 framljós.
- Grinding discs: P800 (x2), P1200 (x2), P2000 (x2)
- M10 Male to Female Adapter
- 40g sanding compound (x2)
- 3ml Protection Liquid (x2)
- 3m x 20mm masking tape
- Back plate for sanding discs and sponges
- M10 Female Thread
- Sponge Discs: orange and white