Bosch C10 Battery Charger 12V – Bosch C10 er mjög hraðvirkt og öflugt hleðslutæki og vaktari, hentar fyrir 12V blý-sýrugeyma, EFB, GEL, AGM, EFB (Start/Stop) rafgeyma.
- Bosch C10 hleðslutækið er einfalt í notkun, einn hnappur stjórnar aðgerðum. LED ljós lætur þig vita hver staðan er á tækinu, hvort það er að hlaða eða hvort rafgeymir er fullhlaðinn.
- Tækið er eins þétt og fyrirferðarlítið og hægt er, það kemur í handhægri tösku sem geymir allt sem tengist tækinu. Passar vel undir sæti eða í hliðarhólf í farangursrými margra bíla.
- Öflugar rafgeymaklemmur sitja vel og örugglega á rafgeyminum. Aukalega þá kemur snúra með auga-tengjum sem henta á marga eldri bíla og mótorhjól sem og þar sem erfitt er að koma klemmum á pólana.
- Öryggi skiptir öllu máli. Bosch C10 tækið hættir að hlaða ef það koma upp vandamál svo sem ofhitnum, útsláttur og þess háttar.
- C10 hleðslutækið er rakavarið IP65 (ryk og skvetthelt). Tækið kemur líka í veg fyrir neistamyndun þegar verið er að setja klemmurnar á rafgeyminn eða taka þær af.
Bosch C10 hleðslutæki og vaktari
Fjölhæft hrað-hleðslutæki fyrir 12V rafgeyma
Með 3,5A hleðslustraumi er Bosch C10 hleðslutækið skilvirkt og mjög hraðvirkt.
Það hentar jafn vel hefðbundnum blýsýru- eða GEL-rafhlöðum sem og nýju Start/Stop AGM og EFB tækninni, það er samhæft við 12V rafgeyma.
Bosch C10 er líka sjálfvirkt og má segja að það sé snjalltæki upp á það að velja réttan hleðsluham.
![](https://kemi.is/wp-content/uploads/2024/05/image-1.webp)