Frostlögur er meira en bara frostvörn. Alde lagnakerfi eru hringrásarkerfi. Vökvinn sem er á þeim er hitaður upp og svo fer hann um allar lagnir og heldur heitu á ýmsum búnaði.
Vökvinn sem er á Alde lagnakerfinu inniheldur frostlög sem er með margþætta virkni, hann ver kerfið gegn ryði og tæringu, kemur í veg fyrir örverur og bakteríur nái fótfestu. Þrátt fyrir að um sé að ræða hágæða efni þá fellur gildið á frostlegi yfir tímann og því þarf að skipta þessum vökva út reglulega.
Tilgangur frostlögs:
- Ryð- og tæringarvörn fyrir alla snertifleti á lagnakerfinu.
- Kemur í veg fyrir örverur og bakteríur í vökvanum.
- Frostvörn ver kerfið fyrir allt að -25°C.
Með því að hugsa vel um vökvann sem er á kerfinu lengir þú lítfíma þess og minnkar viðhald. Passaðu að frostlögurinn sé alltaf í réttum hlutföllum og gildi hans séu ekki fallin. Á íslandi erum við endalaust að ganga í gegnum hita, kulda/frost og það margborgar sig að vera með þetta í lagi.