MOTIP Kompakt Touch-Up – Blandað lakk í blettanir

Kompakt Car Paint (Touch-Up)

Þarft þú að bletta í bílinn þinn?

MOTIP Kompakt Touch-Up er hgæða blandað bílalakk, hjá Poulsen færð þú hátt í 500 litaafbrigði í 12ml flöskum sem eru með pensli í lokinu til að auðvelda og flýta fyrir þegar þörf er á að bletta.

Hentar mjög vel til að gera við minni rispur, steinkast og lakkskemmdir á yfirborði bíla. MOTIP Touch-Up inniheldur nákvæmlega samsetta bílamálningu sem tryggir fagmannlegt og varanlegt útlit við litasamræmi við upprunalegan bílaliti.

Helstu eiginleikar

  • Sérstaklega hentugt fyrir litlar skemmdir eins og rispur, steinkast og lakkskemmdir
  • Innbyggður pensill í loki gerir notkun fljótlega og þægilega.
  • Fljótþornandi formúla sem tryggir stuttan biðtíma.
  • Góð viðloðun við málma og eldri lakkaða fleti.
  • Veðurþolin og UV-þolin formúla fyrir langvarandi áferð og litastöðugleika
  • Fæst í mörgum upprunalegum (OE-samsvarandi) litum bíla.

Kompakt Car Paint (Touch-Up) er lakkvöru lína frá MOTIP sem inniheldur lakk til blettunar í bíla. Við erum með mikið úrval lita eða yfir 400 liti sem byggja á litanúmerum bílaframleiðenda. Kompakt Car Paint (Touch-up) kemur í 12ml einingum, einnig eigum við grunn og glæru í þessum 12ml einingu. Sérstaklega hentugar einingar í minni lagfæringar svo sem grjótkast og litlar rispur. Ekki þörf að fjárfesta í miklu magni af lakki fyrir litlar skemmdir. Tappinn á brúsanum er með áföstum pensli til blettunar. Hágæða lakk sem er hraðþornandi og fyllir mjög vel.

Hjá Poulsen færð þú líka allt sem þarf til að massa bílinn, bóna og viðhalda lakkinu ásamt bón- og massavélum sem og margskonar bón- og massapúðum og allt annað sem þú mögulega gætir þurft til að gera bílinn þinn glæsilegan. Hvort sem þú ert að leita að vörum fyrir bílskúrinn eða ert fagmaður í bíliðn þá eigum við allt fyrir bílinn.