Nikwax Tent & Gear Solarproof er vatnsvörn sem inniheldur sólarvörn og ver efnið gegn útfjólubláum geislum sólar. Nikwax Tent & Gear SolarProof er ætlað til þess að vatns- og rakaverja tjöld og ýmislegt annað úr synþetískum efnum t.d. bakpokum, töskur og margskonar útivistarfatnað.
Nikwax Tent & Gear SolarProof er lyktarlítið og ólíkt mörgum öðrum vatnsvarnarefnum þá má bera Nikwax Tent & Gear á bæði þurra sem og raka fleti.
Til að sem bestur árangur náist þá þarf að þrífa flötinn vel áður en efnið er borið á, ekki er þörf á því að þurrka það áður en Nikwax Tent & Gear SolarProof er borið á.
Instructions for use
- Best er að hafa flötinn á hörðu yfirborði eða hafa tjaldið spennt svo þægilegra sé að bera á yfirborðið.
- Úðið efninu jafnt yfir utanvert tjaldið eða efnið sem rakaverja.
- Bíðið í 2 mínútur. Fjarlægið umframefni með rökum klút.
- Passið það að efnið hafi farið jafnt yfir allan flötinn sem á að rakaverja.
50ml af efninu duga á 1m², þó veltur það á ástandi efnisins sem borið er á, þykkari efni taka meira til sín en t.d. þunn nælontjöld.
*** Það er góð regla við notkun á öllum efnavörum að byrja ávallt á því að prófa þau á lítt sjáanlegum stað. Ástæða þess er að sjá hvernig flöturinn/yfirborðið bregst við efninu sem verið er að nota. Við notkun á Nikwax Tent & Gear SolarProof geta komið rákir eða strikamyndun af umframmagni sem borið er á flötinn.