MOTIP

Kompakt black metallic 12 ml

Vörunúmer 048 951025
Verð
2.269 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Svartur metallic. MOTIP Kompakt Touch-Up blettalakk, 12 ml, með áföstum pensli. Blandað eftir 102 upprunalegum bílalitum frá 33 bílframleiðendum. MOTIP-vörunúmer 951025. Fyrir grjótkast og litlar rispur.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer048 951025 Strikamerki8711347921522 Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

MOTIP Kompakt Touch-Up. Svartur metallic, 12 ml

Blettalakk í 12 ml túpu með áföstum pensli. Það er ætlað í grjótkast, litlar rispur og aðrar smáskemmdir þar sem engin ástæða er til að kaupa heilan brúsa af lakki. Lakkið þornar hratt, fyllir vel og heldur lit og gljáa.

Þessi túpa ber MOTIP-vörunúmerið 951025. Hún er blönduð eftir 102 upprunalegum bílalitum frá 33 bílframleiðendum. Finndu litakóðann á bílnum þínum í töflunni hér fyrir neðan. Passi hann við töfluna er þetta rétta túpan.

KOMPAKT CAR PAINT black metallic 12 ml. Sýnishornið er til viðmiðunar. Skjár gefur ekki rétta mynd af lakki.

Bílalitir sem þessi túpa passar á

Bílaframleiðandi Litakóði Heiti litarins Árgerðir
ASIA AS9002 Mousy Grey Met. 2C 1993–1995
AUDI LZ9U Vulkanschwarz P. 2C 1993–2005
BLMC LRC901 Aukland Blue Met. 2C 1997–2000
CHRYSLER AW Dark Slate P. 2C 1997–2002
CITROEN ETW Gris Graphite Met. 2C 1990–2004
DACIA 91002 Black Met. 2C 1994
DAEWOO 85L Phantom Grey P. 2C 1994–1998
DAIHATSU 081 Nova Black Met. 2C 1991–1992
FORD AMERICA 1Y Dark Charcoal Met. 2C 1984–1985
FORD EUROPE 9 Ash Black Met. 2C 1993–1999
GENERAL MOTORS 17 Black Met. 2C 1985–1986
HONDA NH-561P-3 Phantom Grey P. 2C 1992–1996
JAGUAR JAG9196 Black Crystal Met. 1987–1988
KIA 1U Urban Gray P. 2C 2006–2011
LAND ROVER 901 Aukland Blue Met. 2C 1997–2003
LEXUS LEX9406 Dark Onyx Gray Met. 2C 1989–1991
MAZDA 16H Dark Gray P. 2C 1996–1997
MERCEDES BENZ 195 Meteorgrau Met. 2C 1997–2004
MITSUBISHI A75 Thurston/Prescott/Medium Grey P. 2C 1995–2016
NISSAN 003 Dark Blue/Violet Met. 2C 1982–1983
OPEL 256 Schwarz Met. 2C 1986–1990
PEUGEOT ATW Gris Graphite Met. 2C 1983–2000
PROTON AC10989 Shadow Grey P. Met. 2C 1993–2000
RENAULT 038 Noir Irise Met. 2C 1978–1980
ROVER LVD Charcoal/Niagara Black Met. 2C 1993–1999
SAAB 248 Nova Black Met. 2C 1993–2000
SEAT 669 Gris Acre Met. 2C 1990–1991
SUBARU/FUJI 22 Dark Gray Met. 2C 1992–2000
SUZUKI 28T Saxony Black Met. 2C 1987–1989
TOFAS 016 Metalik Füme 2C

Taflan sýnir 30 af 102 litum. Litaleitin efst á flokkasíðunni Kompakt Touch-Up leitar í þeim öllum. Sláðu inn bílmerki og litakóða og hún segir þér hvaða túpa á við.

Hvernig finn ég litakóðann á bílnum mínum?

Litakóðinn er á bílnum sjálfum, á límmiða eða plötu frá framleiðandanum. Tveir bílar geta litið eins út en borið sinn hvorn kóðann, því framleiðendur skipta um lakk milli árgerða. Þess vegna dugar ekki að velja lit eftir útliti.

Algengustu staðirnir eru:

  • Á stafnum við ökumannshurðina, þar sem hurðin lokast.
  • Undir vélarhlífinni, oft á þverbita við vatnskassann.
  • Í farangursrýminu, undir gólfmottunni eða við varadekkið.
  • Í hanskahólfinu eða í þjónustubókinni.

Kóðinn er yfirleitt tveir til fjórir stafir, blanda af bókstöfum og tölum. Hann stendur gjarnan við orð á borð við Paint, Color, Farbe eða Lack. Finnirðu hann ekki getur þú leitað eftir bílmerki og árgerð í litaleitinni.

Undirvinna

Undirvinnan ræður því hvernig blettunin kemur út.

  1. Þvoðu svæðið og náðu allri fitu, tjöru og vaxi af. Lakk festist ekki á óhreinu yfirborði.
  2. Hreinsaðu lausar lakkflögur og ryð úr sárinu. Ryð sem verður eftir undir lakkinu heldur áfram að vinna.
  3. Slípaðu brúnirnar á sárinu mjúkar svo blettunin myndi ekki kant.
  4. Grunnaðu beran málm. Grunnurinn er það sem lakkið loðir við.
  5. Þurrkaðu rykið af með örtrefjaklút rétt áður en þú lakkar.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Fjarlægðu laust lakk og ryð úr sárinu og hreinsaðu það vel.
  2. Yfirborðið á að vera hreint, þurrt og fitulaust.
  3. Túpan á að vera við stofuhita. Besta vinnsluhitastigið er 10–25 °C.
  4. Hristu túpuna í tvær mínútur fyrir notkun og prófaðu litinn á földum stað.
  5. Berðu lakkið á í nokkrum þunnum lögum fremur en einu þykku.
  6. Bestur árangur næst með því að leggja glæru yfir að lokum.
  7. Þurrktíminn ræðst af hita, rakastigi og þykkt lakksins.

Lestu alltaf leiðbeiningarnar á umbúðunum áður en þú byrjar og farðu eftir þeim.

Litbrigði undir sama kóða

Sumir litakóðar eiga sér fleiri en eitt litbrigði. Bílframleiðendur kaupa lakk frá mismunandi birgjum milli framleiðslulota, svo sami kóði getur verið örlítið mismunandi á litinn. Munurinn er lítill en getur sést. Prófaðu alltaf á földum stað fyrst, eða komdu við hjá okkur og berðu túpuna saman við litakortið.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,03 kg
Framleiðandi

Magn

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
MOTIP
Skoða allt →