MOTIP

Kompakt green high gloss 12 ml

Vörunúmer 048 944518
Verð
2.269 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Grænn gljáandi. MOTIP Kompakt Touch-Up blettalakk, 12 ml, með áföstum pensli. Blandað eftir 11 upprunalegum bílalitum frá 6 bílframleiðendum. MOTIP-vörunúmer 944518. Fyrir grjótkast og litlar rispur.

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer048 944518 Strikamerki8711347053469 Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

MOTIP Kompakt Touch-Up. Grænn gljáandi, 12 ml

Blettalakk í 12 ml túpu með áföstum pensli. Það er ætlað í grjótkast, litlar rispur og aðrar smáskemmdir þar sem engin ástæða er til að kaupa heilan brúsa af lakki. Lakkið þornar hratt, fyllir vel og heldur lit og gljáa.

Þessi túpa ber MOTIP-vörunúmerið 944518. Hún er blönduð eftir 11 upprunalegum bílalitum frá 6 bílframleiðendum. Finndu litakóðann á bílnum þínum í töflunni hér fyrir neðan. Passi hann við töfluna er þetta rétta túpan.

KOMPAKT CAR PAINT green high gloss 12 ml. Sýnishornið er til viðmiðunar. Skjár gefur ekki rétta mynd af lakki.

Bílalitir sem þessi túpa passar á

Bílmerki Litakóði Heiti litarins Árgerðir
AUDI LP6M Karibicgruen 1990–1998
FSO B69 Turquoise 1999–2000
MITSUBISHI AC10960 Peacock (Acapulco) Green 1990–1996
MITSUBISHI B60 Peacock (Acapulco) Green 1990–1996
SCANIA 1396279 Green 1999–2000
SCANIA SCA6018 Caribean Green 1992
TOYOTA 705 Loire Turquoise 1976–2001
VOLKSWAGEN 9617 Karibicgruen 1990–2001
VOLKSWAGEN LP6M Karibicgruen 1990–2001
VOLKSWAGEN M2 Karibicgruen 1990–2001
VOLKSWAGEN P6M Karibikgrün 1990–1998

Hvernig finn ég litakóðann á bílnum mínum?

Litakóðinn er á bílnum sjálfum, á límmiða eða plötu frá framleiðandanum. Tveir bílar geta litið eins út en borið sinn hvorn kóðann, því framleiðendur skipta um lakk milli árgerða. Þess vegna dugar ekki að velja lit eftir útliti.

Algengustu staðirnir eru:

  • Á stafnum við ökumannshurðina, þar sem hurðin lokast.
  • Undir vélarhlífinni, oft á þverbita við vatnskassann.
  • Í farangursrýminu, undir gólfmottunni eða við varadekkið.
  • Í hanskahólfinu eða í þjónustubókinni.

Kóðinn er yfirleitt tveir til fjórir stafir, blanda af bókstöfum og tölum. Hann stendur gjarnan við orð á borð við Paint, Color, Farbe eða Lack. Finnirðu hann ekki getur þú leitað eftir bílmerki og árgerð í litaleitinni.

Undirvinna

Undirvinnan ræður því hvernig blettunin kemur út.

  1. Þvoðu svæðið og náðu allri fitu, tjöru og vaxi af. Lakk festist ekki á óhreinu yfirborði.
  2. Hreinsaðu lausar lakkflögur og ryð úr sárinu. Ryð sem verður eftir undir lakkinu heldur áfram að vinna.
  3. Slípaðu brúnirnar á sárinu mjúkar svo blettunin myndi ekki kant.
  4. Grunnaðu beran málm. Grunnurinn er það sem lakkið loðir við.
  5. Þurrkaðu rykið af með örtrefjaklút rétt áður en þú lakkar.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Fjarlægðu laust lakk og ryð úr sárinu og hreinsaðu það vel.
  2. Yfirborðið á að vera hreint, þurrt og fitulaust.
  3. Túpan á að vera við stofuhita. Besta vinnsluhitastigið er 10–25 °C.
  4. Hristu túpuna í tvær mínútur fyrir notkun og prófaðu litinn á földum stað.
  5. Berðu lakkið á í nokkrum þunnum lögum fremur en einu þykku.
  6. Bestur árangur næst með því að leggja glæru yfir að lokum.
  7. Þurrktíminn ræðst af hita, rakastigi og þykkt lakksins.

Lestu alltaf leiðbeiningarnar á umbúðunum áður en þú byrjar og farðu eftir þeim.

Litbrigði undir sama kóða

Sumir litakóðar eiga sér fleiri en eitt litbrigði. Bílframleiðendur kaupa lakk frá mismunandi birgjum milli framleiðslulota, svo sami kóði getur verið örlítið mismunandi á litinn. Munurinn er lítill en getur sést. Prófaðu alltaf á földum stað fyrst, eða komdu við hjá okkur og berðu túpuna saman við litakortið.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,03 kg
Framleiðandi

Magn

Lakk - gljástig

Háglans – Glossy

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
MOTIP
Skoða allt →