MOTIP

Kompakt white high gloss 12 ml

Vörunúmer 048 945740
Verð
2.269 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Hvítur gljáandi. MOTIP Kompakt Touch-Up blettalakk, 12 ml, með áföstum pensli. Blandað eftir 26 upprunalegum bílalitum frá 14 bílframleiðendum. MOTIP-vörunúmer 945740. Fyrir grjótkast og litlar rispur.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer048 945740 Strikamerki8711347921157 Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

MOTIP Kompakt Touch-Up. Hvítur gljáandi, 12 ml

Blettalakk í 12 ml túpu með áföstum pensli. Það er ætlað í grjótkast, litlar rispur og aðrar smáskemmdir þar sem engin ástæða er til að kaupa heilan brúsa af lakki. Lakkið þornar hratt, fyllir vel og heldur lit og gljáa.

Þessi túpa ber MOTIP-vörunúmerið 945740. Hún er blönduð eftir 26 upprunalegum bílalitum frá 14 bílframleiðendum. Finndu litakóðann á bílnum þínum í töflunni hér fyrir neðan. Passi hann við töfluna er þetta rétta túpan.

KOMPAKT CAR PAINT white high gloss 12 ml. Sýnishornið er til viðmiðunar. Skjár gefur ekki rétta mynd af lakki.

Bílalitir sem þessi túpa passar á

Bílaframleiðandi Litakóði Heiti litarins Árgerðir
AMC J14 White Textured 1988
BMW 218 Alpinweiss Ii 1987–1993
BRITISH STANDARD RANGE 4800 22B15 Swansdown
CHRYSLER HWA Pearl White 1989
CHRYSLER PW4 Sophia White 1988–1996
CHRYSLER PWA Pearl White 1989
CHRYSLER QWA Pearl White 1989
CITROEN AC088 Blanc Meije Ii 2C 1976–2002
CITROEN EWT Blanc Meije Ii 2C 1976–2002
CITROEN GWB Blanc Meye 1974–1994
DAIHATSU W23 White 2004–2012
FORD AMERICA 9F White 1984
FORD AMERICA M5418 White 1984
LEXUS 8007 White (Int.) 1999–2000
PIAGGIO P877/00 Bianco 1990–1992
SAAB 153 Cirrus White 1980–2002
SCANIA 1425605 White 1998–2000
SKODA 9P9P Candy Weiss 1996–2018
SKODA B4B4 Candyweiss 1996–2018
SKODA B9A Candyweiss 1996–2018
SKODA L102 Candyweiss 1997–2018
TOYOTA 068 White Neve 2000–2018
VOLVO 1111 Silk White 1996–2000
VOLVO S98714 Silk White 1996–2000

Taflan sýnir 24 af 26 litum. Litaleitin efst á flokkasíðunni Kompakt Touch-Up leitar í þeim öllum. Sláðu inn bílmerki og litakóða og hún segir þér hvaða túpa á við.

Hvernig finn ég litakóðann á bílnum mínum?

Litakóðinn er á bílnum sjálfum, á límmiða eða plötu frá framleiðandanum. Tveir bílar geta litið eins út en borið sinn hvorn kóðann, því framleiðendur skipta um lakk milli árgerða. Þess vegna dugar ekki að velja lit eftir útliti.

Algengustu staðirnir eru:

  • Á stafnum við ökumannshurðina, þar sem hurðin lokast.
  • Undir vélarhlífinni, oft á þverbita við vatnskassann.
  • Í farangursrýminu, undir gólfmottunni eða við varadekkið.
  • Í hanskahólfinu eða í þjónustubókinni.

Kóðinn er yfirleitt tveir til fjórir stafir, blanda af bókstöfum og tölum. Hann stendur gjarnan við orð á borð við Paint, Color, Farbe eða Lack. Finnirðu hann ekki getur þú leitað eftir bílmerki og árgerð í litaleitinni.

Undirvinna

Undirvinnan ræður því hvernig blettunin kemur út.

  1. Þvoðu svæðið og náðu allri fitu, tjöru og vaxi af. Lakk festist ekki á óhreinu yfirborði.
  2. Hreinsaðu lausar lakkflögur og ryð úr sárinu. Ryð sem verður eftir undir lakkinu heldur áfram að vinna.
  3. Slípaðu brúnirnar á sárinu mjúkar svo blettunin myndi ekki kant.
  4. Grunnaðu beran málm. Grunnurinn er það sem lakkið loðir við.
  5. Þurrkaðu rykið af með örtrefjaklút rétt áður en þú lakkar.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Fjarlægðu laust lakk og ryð úr sárinu og hreinsaðu það vel.
  2. Yfirborðið á að vera hreint, þurrt og fitulaust.
  3. Túpan á að vera við stofuhita. Besta vinnsluhitastigið er 10–25 °C.
  4. Hristu túpuna í tvær mínútur fyrir notkun og prófaðu litinn á földum stað.
  5. Berðu lakkið á í nokkrum þunnum lögum fremur en einu þykku.
  6. Bestur árangur næst með því að leggja glæru yfir að lokum.
  7. Þurrktíminn ræðst af hita, rakastigi og þykkt lakksins.

Lestu alltaf leiðbeiningarnar á umbúðunum áður en þú byrjar og farðu eftir þeim.

Litbrigði undir sama kóða

Sumir litakóðar eiga sér fleiri en eitt litbrigði. Bílframleiðendur kaupa lakk frá mismunandi birgjum milli framleiðslulota, svo sami kóði getur verið örlítið mismunandi á litinn. Munurinn er lítill en getur sést. Prófaðu alltaf á földum stað fyrst, eða komdu við hjá okkur og berðu túpuna saman við litakortið.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,03 kg
Framleiðandi

Magn

Lakk - gljástig

Háglans – Glossy

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
MOTIP
Skoða allt →