Hreinsiefni fyrir sótagnasíur (DPF). Sótagnasíur eru í flestum bílum í dag, nema þeim elstu. Margir nýir bílar búa yfir svokallaðri Start/Stop tækni sem drepur á bílnum á ljósum o.þ.h. við þetta sótast síur og skynjarabúnaður fyrr en ella. DPF hreinsiefnið er sett út í díselolíuna og hjálpar til við að halda sótagnasíunni og skynjarabúnaði hreinum.
Inniheldur: 50 ml af hreinsiefni
Leiðbeiningar
Setjið 1 flösku (50ml) af hreinsiefni í eldsneytistank 40-60 lítra og mælt er með notkun á c.a. 3.000 km fresti.
Ef að um stærri bíla er að ræða borgar sig að setja 2 eða fleiri skammta, en það fer eftir stærð eldsneytistanks.