3M™ Polish Rosa 80345 er hágæða pólýmer bón þróað fyrir faglega bílaumhirðu og bílaverkstæði. Efnið veitir djúpan glans og langvarandi vörn á bæði nýlökkuðum og upprunalegum lakkyfirborðum. Bónið hreinsast auðveldlega af, hvort sem unnið er á stökum flötum eða heilum ökutækjum, sem sparar tíma og tryggir jafna og faglega útkomu.
Varan inniheldur órokgjarnar sílíkonfjölliður sem berast ekki með lofti í málningarverkstæðum og hefur því ekki neikvæð áhrif á lakkvinnslu. Hún skilur ekki eftir sig bletti á hefðbundnum plast- eða gúmmíhlutum bíla og er samhæf við allar algengar púss- og hreinsiþurrkur sem notaðar eru í faglegu umhverfi.
3M™ Polish Rosa hentar vel bæði í lakkviðgerðir og í almenna bílaþrifa- og bónþjónustu. Hægt er að bera efnið á með mjúkri einnota klút / þurrku eða með bónpúða á bón- og massavélum þegar unnið er á stærri flötum. Eftir stuttan þurrktíma næst fram hreint og glansandi yfirborð með einfaldri þurrkun.
Helstu eiginleikar
- Pólýmer bón með sílíkonfjölliðum fyrir mikinn glans og vörn
- Auðvelt í notkun og mjög gott að þurrka af
- Órokgjarnar sílíkonagnir, hentar í málningarverkstæðum
- Litar ekki plast eða gúmmí
- Fyrir faglega notkun í bílaumhirðu og viðgerðum








