Skýjuð framljós eru algengt vandamál í mörgum bílum. Framljós sem slitna vegna veðrunar, sands og óhreininda af götum sem og vegna útfjólublárrar geislunar (UV) missa gegnsæi, slíkt dregur úr lýsingu og öryggi í akstri. Auk þessa þá verður þetta ekki til að bæta útlit bílsins.
Hvað veldur þessu?
Flest bílljós eru úr plasti sem er varið með þunnu hlífðarlagi. Með tímanum eyðist þetta lag vegna UV-geislunar, salts, sandblásturs og óhreininda af vegum. Afleiðingin er matt yfirborð, gulnun og rispur sem dreifa ljósinu í stað þess að beina því rétt.
Helstu orsakir eru:
• UV-geislar sólarinnar
• Sandur, möl og vegaóhreinindi sem fer í ljósin
• Vegsalt og efni á vetrarvegum
• Skortur á reglulegri umhirðu
Er hægt að laga veðruð ljós?
Já það er hægt að gera það! Við eigum til nokkrar lausnir til að laga veðruð og slitin ljós. Slípisett sem inniheldur allt sem þarf til að lagfæra, slípa og hreinsa ljósin svo þau nái gegnsæi, veiti góða lýsingu og ljósdreifingu og umfram allt uppfylli öryggi þitt í umferðinni. Á myndbandinu hér að neðan má sjá eina leið til að hreinsa framljós á bílum.







