Hjá Poulsen getur þú fengið blandað bílalakk frá þekktum og viðurkenndum birgjum. Við finnum rétta litinn fyrir þig út frá upprunalega litanúmerinu á bílnum þínum. Við bjóðum lakkið í margskonar einingum s.s. 250ml, 500ml, 1L og stærri einingum en einnig er hægt að fá lakkið afhent í spreybrúsum. Við bjóðum allt sem þarf í undirvinnuna til dæmis slípivörur, fylliefni, grunn ásamt glæru lakki í margskonar útfærslum.
Hvort sem um er að ræða litla rispu, steinskemmd eða stærri viðgerð skiptir máli að liturinn passi. Með því að kaupa blandað bílakk frá Poulsen í Skeifunni 2 fæst nákvæm litalausn sem tryggir faglega niðurstöðu og langvarandi endingu.
Hvað er blandað bílalakk
Blandað bílalakk er lakk sem er sérblandað eftir litanúmeri bílsins. Hver bíll hefur sitt einstaka litanúmer frá framleiðanda og með réttum búnaði og sérþekkingu er hægt að endurskapa litinn með mikilli nákvæmni.
Ólíkt staðlaðri og tilbúinni sprey- eða hillulausn er blandað bílalakk sérsniðið að hverju verkefni, sem skilar betri áferð, jafnari lit og faglegra útliti.
Fyrir hverja hentar blandað bílalakk
Blandað bílalakk hentar breiðum hópi viðskiptavina.
- Bílaáhugafólk sem sinnir viðgerðum sjálft og vill faglega niðurstöðu heima við.
- Bílaeigendur sem vilja halda bílnum sínum í sem bestu ástandi og viðhalda endursöluverðmæti.
- Bíla- og sprautuverkstæði sem gera kröfu um nákvæmni og stöðug gæði.
Kostir blandaðs bílaklakks frá Poulsen
Við val á bílalakki skiptir gæði miklu máli. Með blönduðu bílakki frá Poulsen njóta viðskiptavinir meðal annars eftirfarandi kosta.
- Nákvæm litablöndun eftir litanúmeri bílsins.
- Jöfn og falleg áferð sem fellur að upprunalegu lakki.
- Lausnir sem henta bæði fyrir minni og stærri viðgerðir.
Frá litakóða að tilbúnu bílalakki
Ferlið við að kaupa blandað bílalakk hjá Poulsen er einfalt og skilvirkt.
- Fyrst eru teknar upplýsingar um bílinn, litakóði og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
- Lakkið er síðan blandað með nákvæmum mælitækjum samkvæmt forskrift framleiðanda.
- Að lokum er lakkið afhent tilbúið til notkunar, í því magni og í þeim umbúðum sem hentar verkefninu best.





Af hverju velja blandað bílalakk frá Poulsen
Þegar kemur að bílalakki er nákvæmni lykilatriði. Rétt samsetning á bílalakki, grunni, herði og yfirlakki skiptir miklu máli fyrir endingu, gljáa og vörn lakksins. Með blönduðu bílalakki frá Poulsen fá viðskiptavinir lausn sem sameinar gæði, sérþekkingu og persónulega þjónustu.
Athugið að það næst þó aldrei sami árangur að lakka heima eða í hobbý aðstæðum eins og að notast við fagmenn og sprautuverkstæði með klefa.
Komdu við og fáðu persónulega ráðgjöf um val á réttum efnum fyrir undirvinnu, grunn, lakk og því sem þarf, við tökum vel á móti þér í Skeifunni 2.

