MaxShine

MaxShine framleiðir verkfæri og aukahluti fyrir bílaþrif og bílaumhirðu. Úrvalið nær meðal annars yfir kvoðubyssur og úðakúta, þvottahanska og þvottakústa úr örtrefjum, fötuvagna og hlífðarpoka fyrir hjól. Vörurnar eru hannaðar fyrir fagfólk í bílaþrifum en henta jafnframt öllum sem vilja þvo bílinn vel og fara vel með lakkið.

MaxShine kvoðubyssur og þvottabúnaður fyrir bílaþrif

MaxShine sérhæfir sig í búnaði fyrir bílaþrif. Áherslan er á vandaðan búnað sem gerir handþvottinn fljótlegri og dregur úr hættu á rispum í lakkinu.

Kvoðubyssur og úðakútar

Kvoða er borin á bílinn á undan handþvotti til að losa um óhreinindi áður en snert er við lakkinu. Hjá Poulsen fást þrjár gerðir frá MaxShine: Snow Master kvoðubyssa fyrir háþrýstidælu, lágþrýstings kvoðubyssa sem tengist beint við garðslöngu og rafhlöðudrifinn 2 L úða- og kvoðukútur sem þarf hvorki dælu né slöngu. Millistykkjasett tengja kvoðubyssuna við háþrýstidælur með Nilfisk- eða Bosch-tengi.

Þvottahanskar, kústar og aukahlutir

Þvottahanski úr þykkum örtrefjum heldur miklu sápuvatni og fer vel með lakkið. IncrediStick þvottakústurinn er með lengjanlegu álskafti og nær upp á þök á húsbílum, pallbílum, kerrum og bátum, og skiptipúðar fást bæði úr örtrefjum og chenille. Fötuvagn á snúningshjólum heldur þvottafötunni og brúsunum innan seilingar, og hlífðarpokar verja felgur og dekk við bón, mössun, geymslu og flutning.

Við val á kvoðubyssu skiptir máli hvaða búnaður er til staðar: Snow Master þarf háþrýstidælu og rétt millistykki, lágþrýstings kvoðubyssan dugar með garðslöngu og rafhlöðudrifni kúturinn er notaður hvar sem er.

MaxShine