Úðakútur IK MULTI
Úðakútur IK MULTI
Fylgiskjöl1 skjal
Listar
- Úðakútur IK MULTI listi 64 kB
Vörulýsing
IK Multi úðakútarnir eru sterkbyggðir og vandaðir úðakútar sem eru allir úr plasti. IK Multi eru þolnir gegn ýmsum sýrum og leysiefnum sem og mörgum öðrum efnum sem eru notuð víða í iðnaði s.s. bílaiðnaði og þrifum. IK Multi úðakúturinn er með gott áfyllingargat, kúturinn er glærleitur og með mælistiku svo að magnið sést. Stillanlegur spíss.
Þú getur séð yfirlit yfir efnaþol IK úðakútanna í fylgiskjölum.
Meðferð úðakúta, til þess að úðakútar (óháð tegund) endist sem lengst er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga:
- Eftir hverja notkun skal tæma loft úr kútnum ásamt öllum vökva.
- Ef að stúturinn verður stíflaður, takið hann úr og hreinsið með vatni, ekki nota málmáhöld við losun stíflunnar.
- Ef að ekki er sérstakur lofttæmiventill, þá er einfaldast að snúa kútnum á hvolf og lofttæma með úðagikknum.
- Athugið! Aldrei skal skrúfa toppinn af úðakútinum með þrýstinginn á, oft er mikill loftþrýstingur á kútunum og getur slys hlotist af því.
- Skolið brúsan vel með heitu eða volgu vatni ásamt því að skola gúmmífóðringar og pakkningar, þannig lengist líftími til muna.
- Úðakúta skal geyma innadyra í þurru lofti og helst í hita, yfir vetrartímann (t.d. í upphituðum geymslum) því slöngur og fóðringar þorna upp og harðna ef að kútar eru geymdir í köldu umhverfi.
Viðbótar upplýsingar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Framleiðandi |
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].
Meira fráIK - GoizperSkoða allt →

IK HC XTREM 1.5 er úðakútur sem hentar sérstaklega vel fyrir verkstæði, iðnað, bílaumhirðu og viðhald þar sem…
Sjá nánar

IK e 15 BS er úðakútur sem ætlaður er á bak þess sem vinnur með hann. Kosturinn við…

Spíss með vörunúmer: 1227 ætlaður fyrir IK FOAM PRO 2+ úðakútana.

Spíss Viton® með vörunúmer: 1194 fyrir IK METAL úðakútinn

Þéttihringur með vörunúmer: 1346 sem er ætlaður fyrir IK INOX úðakútana.

IK ALK Pro 2 úðakútur fyrir basísk hreinsiefni og iðnaðarþrif. Endingargóð hönnun, stillanleg úðun og 2 lítra tankur.

IK HC 1.5 er faglegur handvirkur úðakútur sem er sérstaklega hannaður fyrir notkun með kolvetnisbundnum efnum. Hann hentar…















