IK Sprayers · Goizper

IK úðakútar — réttur kútur fyrir hvert efni

IK eru fagúðakútar frá spænska framleiðandanum Goizper. Það sem greinir þá frá venjulegum garðúðurum er að hver lína er smíðuð fyrir ákveðinn efnaflokk — olíur og leysiefni, sýrur, basísk efni eða froðu — svo þéttin endast og kúturinn lekur ekki eftir nokkrar vikur. Hér finnur þú línurnar, hvaða efni fer í hvaða kút, varahluti og hvernig þú lætur kútinn endast lengur.

IK úðakútar: ALK PRO 12, e FOAM PRO 12, HC 1.5 og MULTI TR 1
6 línurHC, MULTI, ALK, FOAM, INOX og FOOD
0,6 – 16 lFrá handbrúsa upp í bakkút
2,5 – 6 barÖryggisventill á hverjum kút
VarahlutirÞjónustusett, spíssar, ventlar og slöngur á lager

Hvaða kútur?

Byrjaðu á efninu, ekki stærðinni

Algengustu mistökin með úðakúta er að setja í þá efni sem þéttin þola ekki. Kúturinn virkar fínt í fyrstu, en þéttin bólgna eða harðna og eftir nokkrar vikur nær hann ekki upp þrýstingi. Veldu því línuna eftir efninu fyrst og stærðina eftir verkinu.

Olíur og leysiefni

Bremsuhreinsir, tjöruhreinsir, fituleysir, smurolíur og ryðvarnarolíur.

IK HC

Sýrur og sótthreinsun

Kalk- og sýruhreinsar, sótthreinsiefni og hlutlaus hreinsiefni.

IK MULTI

Basísk efni og asetón

Sterkir fituleysar, felguhreinsar, alkóhól og ketónar.

IK ALK

Froða

Forþvottur á bíla, sótthreinsun á fleti og þrif á loftræstikerfum.

IK FOAM

Efnatafla

Hvaða efni fer í hvaða línu

✓ hentar, ✗ hentar ekki, — línan er ekki ætluð í það. „XTREM“ og „TR 1“ merkja að aðeins sú gerð innan línunnar henti. Ef efnið er ekki á listanum: lestu öryggisblað efnisins og hafðu samband við okkur. IK tekur sjálft fram að vegna fjölda efna á markaðnum sé ekki hægt að ábyrgjast að hver kútur þoli hvert efni, og flest halógeneruð leysiefni henta ekki í kútana.

EfniHCMULTIALKFOAMINOXFOOD
Olíur, leysiefni, bremsu- og tjöruhreinsir✓———✓—
Asetón og asetónblöndurXTREM—✓———
Sýrur (kalk- og sýruhreinsar)✗ Nei✓✗ Nei—✗ Nei—
Basísk efni (fituleysar, felguhreinsar)——✓———
Alkóhól og sprittTR 1TR 1✓———
Sótthreinsiefni—✓✓———
Hlutlaus hreinsiefni—✓✓———
Sápur og froðuefni———✓——
Fljótandi matvæli—————✓

Olíur og leysiefni

IK HC — fyrir bremsuhreinsi, tjöruhreinsi og olíur

HC stendur fyrir hydrocarbons — kolvetni. Kútarnir eru smíðaðir úr efnum sem þola jarðolíuafurðir, leysiefni, smurefni og jurta- og dýraolíur, og þetta er kúturinn sem flest verkstæði byrja á: bremsuhreinsir á diska og klossa, tjöruhreinsir á lakk, fituleysir á vélarhluti.

HC XTREM er sterkari útgáfan, með þéttum sem þola lífræn leysiefni, asetónblöndur og vatnsleysanleg efni með lágt VOC-gildi sem fara illa með venjuleg þétti. Hvorugur er gerður fyrir sýrur — þær fara í MULTI.

IK HC 1.5 handknúinn úðakútur fyrir olíur og leysiefni
GerðNýtanlegt / heildÖryggisventillAthugið
HC 1.51 l / 1,5 l2,5 barStillanlegur keiluspíss, 0,7 l/mín
HC XTREM 1.51 l / 1,5 l4 barMálmspíss, þolir asetónblöndur
HC TR 11 l—Úðabrúsi með gikk, fyrir smærri verk

Sýrur og sterk hreinsiefni

IK MULTI og MULTI PRO — fjölnotakútarnir

MULTI-línan er gerð til að þola erfiðustu efnin: sýrur, sótthreinsiefni og hlutlaus og sterk hreinsiefni. Hún er því valin í þrif og sótthreinsun, á byggingarstað, í matvælavinnslu og hvar sem kalkhreinsir eða sýruhreinsir er notaður.

Stóru PRO-kútarnir (9 og 12) eru með læsingu á handfangi, öryggisventli sem sýnir grænt þegar þrýstingur er nægur og rautt þegar hann losnar, og stöðu fyrir sjálfvirka þrýstilosun. Bæði keilu- og flatspíss fylgja. TR-brúsarnir eru handbrúsar með gikk fyrir sömu efni — sýrur þó aðeins þynntar, mest 5 %.

IK MULTI PRO úðakútar í þremur stærðum
GerðNýtanlegt / heildÖryggisventillAthugið
MULTI PRO 21,5 l / 1,9 l2,5 barHandkútur, keilu- og flatspíss
MULTI PRO 96 l / 8 l3 bar, sjálfvirk losun1,5 m slanga, 47 cm rör
MULTI PRO 128 l / 10 l3 bar, sjálfvirk losun1,5 m slanga, 47 cm rör
MULTI 64 l / 6 l3 bar1,3 m slanga, 36 cm rör
MULTI 12 BS12,8 l—Bakkútur
MULTI TR 1 / TR MINI 3601 l / 0,6 l—Brúsar með gikk; MINI úðar í allar áttir

Basísk efni, alkóhól og asetón

IK ALK — bláa línan fyrir basísk efni

Sterk basísk hreinsiefni — fituleysar, ofnahreinsar, felguhreinsar og mörg tjöru- og skordýrahreinsiefni fyrir bíla — fara illa með þétti sem eru gerð fyrir sýrur eða olíur. ALK-kútarnir eru smíðaðir fyrir basa, ketóna eins og asetón og alkóhól, og þola líka sótthreinsiefni og hlutlaus hreinsiefni.

ALK PRO 12 er með EPDM-slöngu og stálhandfangi. ALK-kútarnir eru ekki fyrir sýrur.

IK ALK PRO 12 úðakútur fyrir basísk efni
GerðNýtanlegt / heildÖryggisventillAthugið
ALK PRO 21,5 l / 1,9 l2,5 barKeilu- og flatspíss
ALK PRO 128 l / 10 l3,5 barEPDM-slanga, stálhandfang
ALK 96 l / 8 l3 barRör úr ryðfríu stáli og plasti fylgja

Froða

IK FOAM — þykk, þurr froða án froðubyssu

Kvoðukútur blandar lofti í sápuna í gegnum filtpúða við spíssinn og gefur þétta froðu sem loðir við lóðrétta fleti og fær tíma til að vinna. Það er sama hugmynd og froðubyssa á háþrýstidælu — nema án dælunnar, og með mun minna af efni.

Notað í bílaþrif (forþvottur, felgur, mótorhjól og reiðhjól), sótthreinsun í matvælavinnslu og eldhúsum og þrif á loftræstikerfum. FOAM PRO 2+ er líka með Schrader-lofttengi svo hægt er að fylla hann af lofti með loftpressu.

IK FOAM PRO 2 og FOAM PRO 12 kvoðukútar
GerðNýtanlegt / heildÖryggisventillAthugið
FOAM PRO 2+1,25 l / 1,9 l3 barSchrader-lofttengi, breiður froðuspíss
FOAM PRO 126 l / 10 l3,5 bar, sjálfvirk losunStálhandfang, 47 cm rör

Rafhlöðudrifnir

IK e — engin handdæla

Á „e“-kútunum sér rafknúin loftdæla um þrýstinginn. Þú heldur jöfnum þrýstingi allan tímann án þess að stoppa og dæla, sem skiptir mestu þegar unnið er lengi í einu: froðuþvottur á mörgum bílum, sótthreinsun á stórum flötum eða meindýravarnir.

e MULTI PRO 12 og e FOAM PRO 12 nota 18 V Li-Ion rafhlöðu sem fylgir ásamt hleðslutæki og fæst líka stök. e FOAM PRO 2 er með bæði handpumpu og rafknúna dælu og þrjá froðublandara (blaut, miðlungs og þurr froða). e 15 BS er 15 lítra bakkútur með tveimur stillingum, fyrir meindýravarnir og sótthreinsun.

IK e FOAM PRO 12 rafhlöðudrifinn kvoðukútur
GerðNýtanlegt / heildÖryggisventillAthugið
e FOAM PRO 21,5 l / 2 l3,5 barHandpumpa eða rafknúin dæla
e FOAM PRO 126 l / 10 l4 bar, sjálfvirk losun18 V Li-Ion
e MULTI PRO 128 l / 10 l3,5 bar, sjálfvirk losun18 V Li-Ion
e 15 BS15 l / 16 l—Bakkútur, 18 V Li-Ion

Ryðfrítt stál

IK INOX/SST — stálkútur fyrir þungu verkin

Þegar unnið er með olíur og leysiefni í meira magni og við hærri þrýsting en plastkútur ræður við. Kúturinn er úr ryðfríu stáli, með þrýstimæli, 6 bar öryggisventli, 1,8 m slöngu og 50 cm úðarör úr ryðfríu stáli.

Hentar fyrir olíur, leysiefni og jarðolíuafurðir og leysiefnabundin varnarefni — ekki fyrir sýrur.

IK INOX/SST 6 og 10 úðakútar úr ryðfríu stáli
GerðNýtanlegt / heildÖryggisventillAthugið
INOX/SST 66 l / 9 l6 barÞrýstimælir, 4 kg tómur
INOX/SST 1010 l / 13 l6 barÞrýstimælir, 4,5 kg tómur

Matvæli og landbúnaður

IK FOOD og spenaúðinn

IK FOOD 1.5 er vottaður fyrir snertingu við matvæli (CE og FDA) og ætlaður fyrir fljótandi matvæli eins og olíu, smjör og pækil.

Spenaúðakúturinn er handknúinn 1,5 lítra kútur fyrir spenaúða og sótthreinsiefni í fjósum.

IK FOOD 1.5 úðakútur fyrir matvæli
GerðNýtanlegt / heildÖryggisventillAthugið
FOOD 1.51 l / 1,5 l3,5 barMatvælavottaður (CE, FDA)
Spenaúðakútur1 l / 1,5 l—Fyrir spenaúða

Vörurnar

IK-kútar hjá okkur

Allt sem við eigum í IK-línunni. Flettu til hliðar í hverri röð.

Handknúnir úða- og kvoðukútar

Rafhlöðudrifnir kútar

Allir úðakútar og kvoðukútar →

Meðferð og viðhald

Svona endist IK-kúturinn árum saman

Það sem drepur úðakút er sjaldnast kúturinn sjálfur heldur þéttin: efni sem fær að standa í honum, þétti sem þorna, frost í skúrnum og spíss sem er hreinsaður með nál. Allt eru það hlutir sem tekur tvær mínútur að koma í veg fyrir.

Leiðbeiningarnar hér byggja á handbókum IK. Þær gilda um alla kútana, handknúna jafnt sem rafhlöðudrifna; á rafhlöðukútunum bætist við að taka rafhlöðuna úr og geyma hana hlaðna á frostlausum stað.

Eftir hverja notkun — fimm skref

  1. Losaðu þrýstinginn. Togaðu í öryggisventilinn þar til hvissið hættir, eða settu hann í stöðu fyrir sjálfvirka þrýstilosun á þeim kútum sem hafa hana. Kútur sem stendur undir þrýstingi á milli verka þreytir þéttin og kútinn sjálfan.
  2. Tæmdu kútinn. Ekki geyma efnið í kútnum. Afgangi er fargað eftir reglum um efnið — aldrei í niðurfall nálægt vatni eða brunnum. Á PRO-kútum má nota PRO-lokið til að geyma blönduna lokaða til næstu notkunar.
  3. Skolaðu með hreinu vatni. Fylltu kútinn af vatni, dældu upp og úðaðu því í gegnum slöngu, rör og spíss. Þá skolast efnið líka úr ventlinum og spíssinum, þar sem það annars þornar og stíflar.
  4. Láttu þorna opinn. Skrúfaðu dæluna eða lokið af og láttu kútinn standa opinn á hvolfi svo hann þorni að innan.
  5. Læstu handfanginu. Stóru PRO-kútarnir eru með læsingu á handfanginu. Hún kemur í veg fyrir að kúturinn úði óvart þegar hann er tekinn upp næst.

Reglulega

Smyrðu þéttin

Nokkrir dropar af olíu eða feiti á hreyfanlega hluti dælunnar og á O-hringinn í lokinu lengja líf þéttanna verulega — það segir IK sjálft í handbókinni.

Þurrt þétti slitnar hratt og byrjar að leka lofti; dælan verður þung og kúturinn nær ekki upp þrýstingi.

Hreinsaðu spíssinn og síuna

Stíflaður spíss er skrúfaður af og hreinsaður með vatni. Aldrei nota nál, vír eða önnur málmáhöld — gatið rispast og úðinn verður ójafn.

Í handfangi stærri kútanna er sía. Ef handfangið stíflast: losaðu gripið og hreinsaðu síuna.

Skiptu um slitna hluti

IK selur þjónustusett fyrir hverja línu með þeim hlutum sem slitna fyrst: O-hringjum, þéttikraga, ventli og spíss. Það er brot af verði nýs kúts.

Skemmd slanga, sprunginn kútur eða brotið handfang er hins vegar ekki lagað — því er skipt út fyrir nýjan hlut.

Geymdu kútinn rétt

IK segir 5–30 °C, í skjóli frá frosti og miklum hita. Á Íslandi þýðir það: ekki í bílnum eða óupphituðum skúr yfir veturinn. Í kulda harðna þétti og slöngur og fara að leka.

Geymdu kútinn tóman, hreinan og þrýstingslausan.

Aldrei: skrúfa lokið eða dæluna af meðan þrýstingur er á kútnum · loka, fikta í eða berja á öryggisventilinn · blása í spíss eða ventil með munninum · blanda ólíkum efnum í sama kút · úða á fólk, dýr, rafbúnað eða nálægt opnum eldi.

Bilanaleit

Kúturinn lætur illa — hvað er að?

Flestar bilanir í úðakútum eru þétti eða stífla og lagast með þjónustusetti eða vatni. Hér eru þær algengustu.

EinkenniLíkleg orsökLausn
Nær ekki upp þrýstingi, hvissar við lokiðO-hringur eða þéttikragi í loki slitinn, óhreinn eða þurrHreinsaðu og smyrðu; skiptu um ef hann er sprunginn eða flatur (þjónustusett)
Dælan er þung eða gengur ekki niðurÞurr þétti á dælustönginniNokkrir dropar af olíu eða feiti á stöngina og þéttið
Ójafn úði, dropar eða bunurSpíss stíflaður eða slitinnHreinsaðu með vatni — aldrei með málmi; skiptu um spíss ef hann er slitinn
Úðar ekki þótt þrýstingur sé áSía í handfangi stífluð eða efni þornað í ventliHreinsaðu síuna; skolaðu kútinn með vatni og úðaðu í gegn
Lekur við handfang eða slöngutengiÞétti í handfangi eða tengi slitiðHandfangasett eða nýtt þétti; ónýt slanga er endurnýjuð
Kvoðukútur gefur blauta, þunna froðuFiltpúði óhreinn eða rangur, of lítill þrýstingur eða röng blöndunHreinsaðu eða skiptu um filt, dældu þar til öryggisventillinn opnast og blandaðu eins og framleiðandi sápunnar segir
Kúturinn bólginn, mislitur eða þéttin bólginEfnið hentar ekki kútnumHættu notkun og veldu rétta línu (sjá efnatöfluna)

Varahlutir

Þjónustusett og varahlutir

Þjónustusettin innihalda þá hluti sem slitna fyrst í hverri línu. Myndböndin frá IK sýna hvernig skipt er um þá — það tekur nokkrar mínútur og krefst engra sérverkfæra. Myndböndin eru á ensku.

Þjónustusett fyrir IK HC 1.5
Þjónustusett fyrir FOAM PRO 2 og FOAM 1.5
Þjónustusett fyrir stóru MULTI-kútana
Þjónustusett fyrir FOAM PRO 12
Þjónustusett fyrir MULTI 12 BS

Varahlutir og aukahlutir á lager

Allir aukahlutir í úðakúta →

Myndbönd

IK-kútarnir í notkun

Fimmtán myndbönd frá IK um línurnar og hvernig þær eru notaðar, í sömu röð og línurnar hér að ofan. Þau eru á ensku.

IK HC — olíur og leysiefni
IK MULTI PRO kynnt
Þrif og sótthreinsun með MULTI PRO 2
IK MULTI fyrir iðnað
IK ALK — basísk efni
IK ALK fyrir iðnað
FOAM PRO 2+ í notkun
FOAM PRO 2 — svona stillir þú froðuna
FOAM PRO 12
IK FOAM fyrir iðnað
e FOAM PRO 2 — rafknúin froða
e FOAM PRO 12
e 15 BS bakkútur
IK METAL og INOX kútarnir
Úðabrúsar IK með gikk (TR)

Fróðleikur

Hvernig þrýstiúðari virkar

Þegar þú dælir þjappar þú lofti saman ofan við vökvann í kútnum. Loftið ýtir á vökvann, upp rörið og út um spíssinn þegar þú opnar handfangið. Þrýstingurinn fellur jafnt og þétt eftir því sem kúturinn tæmist — þess vegna þarf að dæla aftur á milli, nema á rafhlöðukútunum sem halda jöfnum þrýstingi.

Öryggisventillinn setur þak á þrýstinginn. Á litlu handkútunum er það 2,5–4 bar, á stálkútunum 6 bar. Það er líka hann sem þú notar til að losa þrýstinginn áður en lokið er opnað.

Keiluspíss

Stillanlegur frá mjórri bunu yfir í víða úðaþoku. Úðinn kemur út í hring og hentar á hluti sem eru óreglulegir í laginu: vélarhluti, felgur, plöntur.

Flatspíss

Úðar í flatri, jafnri rönd. Hentar á slétta fleti — gólf, veggi, bílhliðar — því hver ferð leggur jafnt magn og skarast hreint við þá næstu.

Froðuspíss

Loft blandast sápunni í gegnum filtpúða við spíssinn. Útkoman er þétt froða sem loðir við lóðrétta fleti og gefur efninu tíma til að vinna.

Algengar spurningar

Hvaða IK-kút á ég að velja?

Byrjaðu á efninu sem fer í kútinn, ekki stærðinni. Olíur, leysiefni, bremsu- og tjöruhreinsir fara í HC. Sýrur, sótthreinsiefni og hlutlaus hreinsiefni í MULTI. Basísk efni, alkóhól og asetón í ALK. Sápa sem á að verða að froðu í FOAM.

Stærðin ræðst svo af verkinu: 1–1,5 lítra handkútur fyrir verkstæðið, 6–10 lítrar með slöngu og röri fyrir stærri fleti og rafhlöðudrifinn kútur þegar unnið er lengi í einu.

Má nota sama kútinn fyrir mismunandi efni?

Helst ekki. Efnaleifar í kútnum geta hvarfast við næsta efni, og þétti sem hafa staðið í efni sem þau þola ekki eldast hratt. Margir hafa einn kút fyrir hvert efni og merkja hann skýrt. Ef skipta þarf um efni: skolaðu kútinn mjög vel með vatni fyrst og vertu viss um að nýja efnið sé innan línu kútsins.

Af hverju lekur kúturinn lofti eftir nokkra mánuði?

Langoftast er það O-hringurinn eða þéttikraginn í lokinu sem hefur þornað, óhreinkast eða slitnað. Hreinsaðu hann og smyrðu, og ef hann er sprunginn eða flatur skaltu skipta um hann með þjónustusetti. Við eigum varahluti í flesta IK-kúta.

Má tengja kútinn við loftpressu?

Aðeins ef hann er gerður fyrir það. IK FOAM PRO 2+ er með Schrader-lofttengi til þess. Hinir handknúnu kútarnir eru ætlaðir fyrir handdælu eingöngu og IK tekur fram að þá á ekki að tengja við utanaðkomandi þrýsting. Öryggisventlinum má aldrei loka eða breyta.

Hvernig fæ ég þykkari froðu úr FOAM-kútnum?

Blandaðu sápuna í þeim hlutföllum sem framleiðandi hennar gefur upp, dældu þar til öryggisventillinn opnast og hafðu filtpúðana hreina. Veldu rétta filtinn: hvíti filtinn er fyrir öll efni nema mjög sterk basísk efni, og grái filtinn fyrir sterk basísk efni (pH 11–14). e FOAM PRO 2 er með þrjá froðublandara — blauta, miðlungs og þurra froðu.

Hvað er öryggisventillinn að gera?

Hann losar loft þegar þrýstingurinn nær hámarki kútsins — 2,5 til 6 bar eftir gerð — svo aldrei er hægt að dæla of miklu í hann. Með honum tæmir þú líka þrýstinginn áður en lokið er skrúfað af. Á stóru PRO-kútunum sýnir hann grænt þegar þrýstingur er nægur.

Hvernig geymi ég kútinn yfir veturinn?

Tóman, skolaðan, þrýstingslausan og opinn, innandyra þar sem hitinn er á bilinu 5–30 °C. Frost er það sem fer verst með þétti og slöngur; þau harðna og byrja að leka.

Fást varahlutir í kútinn minn?

Já, í flesta. Við eigum þjónustusett, spíssa, loftventla, dælur, slöngur, rör og framlengingar í IK-kútana — sjá varahlutaröðina hér að ofan. Ef þú finnur ekki hlutinn, hringdu eða sendu okkur línu með gerðinni á kútnum og við finnum hann.

Vantar þig ráð um rétta kútinn?

Segðu okkur hvaða efni á að fara í kútinn og í hvaða verk, og við finnum rétta línuna og stærðina — og varahlutina í þann sem þú átt nú þegar.

Síminn: 530 5900