IK Sprayers · Goizper
IK úðakútar — réttur kútur fyrir hvert efni
IK eru fagúðakútar frá spænska framleiðandanum Goizper. Það sem greinir þá frá venjulegum garðúðurum er að hver lína er smíðuð fyrir ákveðinn efnaflokk — olíur og leysiefni, sýrur, basísk efni eða froðu — svo þéttin endast og kúturinn lekur ekki eftir nokkrar vikur. Hér finnur þú línurnar, hvaða efni fer í hvaða kút, varahluti og hvernig þú lætur kútinn endast lengur.

Hvaða kútur?
Byrjaðu á efninu, ekki stærðinni
Algengustu mistökin með úðakúta er að setja í þá efni sem þéttin þola ekki. Kúturinn virkar fínt í fyrstu, en þéttin bólgna eða harðna og eftir nokkrar vikur nær hann ekki upp þrýstingi. Veldu því línuna eftir efninu fyrst og stærðina eftir verkinu.
Efnatafla
Hvaða efni fer í hvaða línu
✓ hentar, ✗ hentar ekki, — línan er ekki ætluð í það. „XTREM“ og „TR 1“ merkja að aðeins sú gerð innan línunnar henti. Ef efnið er ekki á listanum: lestu öryggisblað efnisins og hafðu samband við okkur. IK tekur sjálft fram að vegna fjölda efna á markaðnum sé ekki hægt að ábyrgjast að hver kútur þoli hvert efni, og flest halógeneruð leysiefni henta ekki í kútana.
| Efni | HC | MULTI | ALK | FOAM | INOX | FOOD |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Olíur, leysiefni, bremsu- og tjöruhreinsir | ✓ | — | — | — | ✓ | — |
| Asetón og asetónblöndur | XTREM | — | ✓ | — | — | — |
| Sýrur (kalk- og sýruhreinsar) | ✗ Nei | ✓ | ✗ Nei | — | ✗ Nei | — |
| Basísk efni (fituleysar, felguhreinsar) | — | — | ✓ | — | — | — |
| Alkóhól og spritt | TR 1 | TR 1 | ✓ | — | — | — |
| Sótthreinsiefni | — | ✓ | ✓ | — | — | — |
| Hlutlaus hreinsiefni | — | ✓ | ✓ | — | — | — |
| Sápur og froðuefni | — | — | — | ✓ | — | — |
| Fljótandi matvæli | — | — | — | — | — | ✓ |
Olíur og leysiefni
IK HC — fyrir bremsuhreinsi, tjöruhreinsi og olíur
HC stendur fyrir hydrocarbons — kolvetni. Kútarnir eru smíðaðir úr efnum sem þola jarðolíuafurðir, leysiefni, smurefni og jurta- og dýraolíur, og þetta er kúturinn sem flest verkstæði byrja á: bremsuhreinsir á diska og klossa, tjöruhreinsir á lakk, fituleysir á vélarhluti.
HC XTREM er sterkari útgáfan, með þéttum sem þola lífræn leysiefni, asetónblöndur og vatnsleysanleg efni með lágt VOC-gildi sem fara illa með venjuleg þétti. Hvorugur er gerður fyrir sýrur — þær fara í MULTI.

| Gerð | Nýtanlegt / heild | Öryggisventill | Athugið |
|---|---|---|---|
| HC 1.5 | 1 l / 1,5 l | 2,5 bar | Stillanlegur keiluspíss, 0,7 l/mín |
| HC XTREM 1.5 | 1 l / 1,5 l | 4 bar | Málmspíss, þolir asetónblöndur |
| HC TR 1 | 1 l | — | Úðabrúsi með gikk, fyrir smærri verk |
Sýrur og sterk hreinsiefni
IK MULTI og MULTI PRO — fjölnotakútarnir
MULTI-línan er gerð til að þola erfiðustu efnin: sýrur, sótthreinsiefni og hlutlaus og sterk hreinsiefni. Hún er því valin í þrif og sótthreinsun, á byggingarstað, í matvælavinnslu og hvar sem kalkhreinsir eða sýruhreinsir er notaður.
Stóru PRO-kútarnir (9 og 12) eru með læsingu á handfangi, öryggisventli sem sýnir grænt þegar þrýstingur er nægur og rautt þegar hann losnar, og stöðu fyrir sjálfvirka þrýstilosun. Bæði keilu- og flatspíss fylgja. TR-brúsarnir eru handbrúsar með gikk fyrir sömu efni — sýrur þó aðeins þynntar, mest 5 %.

| Gerð | Nýtanlegt / heild | Öryggisventill | Athugið |
|---|---|---|---|
| MULTI PRO 2 | 1,5 l / 1,9 l | 2,5 bar | Handkútur, keilu- og flatspíss |
| MULTI PRO 9 | 6 l / 8 l | 3 bar, sjálfvirk losun | 1,5 m slanga, 47 cm rör |
| MULTI PRO 12 | 8 l / 10 l | 3 bar, sjálfvirk losun | 1,5 m slanga, 47 cm rör |
| MULTI 6 | 4 l / 6 l | 3 bar | 1,3 m slanga, 36 cm rör |
| MULTI 12 BS | 12,8 l | — | Bakkútur |
| MULTI TR 1 / TR MINI 360 | 1 l / 0,6 l | — | Brúsar með gikk; MINI úðar í allar áttir |
Basísk efni, alkóhól og asetón
IK ALK — bláa línan fyrir basísk efni
Sterk basísk hreinsiefni — fituleysar, ofnahreinsar, felguhreinsar og mörg tjöru- og skordýrahreinsiefni fyrir bíla — fara illa með þétti sem eru gerð fyrir sýrur eða olíur. ALK-kútarnir eru smíðaðir fyrir basa, ketóna eins og asetón og alkóhól, og þola líka sótthreinsiefni og hlutlaus hreinsiefni.
ALK PRO 12 er með EPDM-slöngu og stálhandfangi. ALK-kútarnir eru ekki fyrir sýrur.

| Gerð | Nýtanlegt / heild | Öryggisventill | Athugið |
|---|---|---|---|
| ALK PRO 2 | 1,5 l / 1,9 l | 2,5 bar | Keilu- og flatspíss |
| ALK PRO 12 | 8 l / 10 l | 3,5 bar | EPDM-slanga, stálhandfang |
| ALK 9 | 6 l / 8 l | 3 bar | Rör úr ryðfríu stáli og plasti fylgja |
Froða
IK FOAM — þykk, þurr froða án froðubyssu
Kvoðukútur blandar lofti í sápuna í gegnum filtpúða við spíssinn og gefur þétta froðu sem loðir við lóðrétta fleti og fær tíma til að vinna. Það er sama hugmynd og froðubyssa á háþrýstidælu — nema án dælunnar, og með mun minna af efni.
Notað í bílaþrif (forþvottur, felgur, mótorhjól og reiðhjól), sótthreinsun í matvælavinnslu og eldhúsum og þrif á loftræstikerfum. FOAM PRO 2+ er líka með Schrader-lofttengi svo hægt er að fylla hann af lofti með loftpressu.

| Gerð | Nýtanlegt / heild | Öryggisventill | Athugið |
|---|---|---|---|
| FOAM PRO 2+ | 1,25 l / 1,9 l | 3 bar | Schrader-lofttengi, breiður froðuspíss |
| FOAM PRO 12 | 6 l / 10 l | 3,5 bar, sjálfvirk losun | Stálhandfang, 47 cm rör |
Rafhlöðudrifnir
IK e — engin handdæla
Á „e“-kútunum sér rafknúin loftdæla um þrýstinginn. Þú heldur jöfnum þrýstingi allan tímann án þess að stoppa og dæla, sem skiptir mestu þegar unnið er lengi í einu: froðuþvottur á mörgum bílum, sótthreinsun á stórum flötum eða meindýravarnir.
e MULTI PRO 12 og e FOAM PRO 12 nota 18 V Li-Ion rafhlöðu sem fylgir ásamt hleðslutæki og fæst líka stök. e FOAM PRO 2 er með bæði handpumpu og rafknúna dælu og þrjá froðublandara (blaut, miðlungs og þurr froða). e 15 BS er 15 lítra bakkútur með tveimur stillingum, fyrir meindýravarnir og sótthreinsun.

| Gerð | Nýtanlegt / heild | Öryggisventill | Athugið |
|---|---|---|---|
| e FOAM PRO 2 | 1,5 l / 2 l | 3,5 bar | Handpumpa eða rafknúin dæla |
| e FOAM PRO 12 | 6 l / 10 l | 4 bar, sjálfvirk losun | 18 V Li-Ion |
| e MULTI PRO 12 | 8 l / 10 l | 3,5 bar, sjálfvirk losun | 18 V Li-Ion |
| e 15 BS | 15 l / 16 l | — | Bakkútur, 18 V Li-Ion |
Ryðfrítt stál
IK INOX/SST — stálkútur fyrir þungu verkin
Þegar unnið er með olíur og leysiefni í meira magni og við hærri þrýsting en plastkútur ræður við. Kúturinn er úr ryðfríu stáli, með þrýstimæli, 6 bar öryggisventli, 1,8 m slöngu og 50 cm úðarör úr ryðfríu stáli.
Hentar fyrir olíur, leysiefni og jarðolíuafurðir og leysiefnabundin varnarefni — ekki fyrir sýrur.

| Gerð | Nýtanlegt / heild | Öryggisventill | Athugið |
|---|---|---|---|
| INOX/SST 6 | 6 l / 9 l | 6 bar | Þrýstimælir, 4 kg tómur |
| INOX/SST 10 | 10 l / 13 l | 6 bar | Þrýstimælir, 4,5 kg tómur |
Matvæli og landbúnaður
IK FOOD og spenaúðinn
IK FOOD 1.5 er vottaður fyrir snertingu við matvæli (CE og FDA) og ætlaður fyrir fljótandi matvæli eins og olíu, smjör og pækil.
Spenaúðakúturinn er handknúinn 1,5 lítra kútur fyrir spenaúða og sótthreinsiefni í fjósum.

| Gerð | Nýtanlegt / heild | Öryggisventill | Athugið |
|---|---|---|---|
| FOOD 1.5 | 1 l / 1,5 l | 3,5 bar | Matvælavottaður (CE, FDA) |
| Spenaúðakútur | 1 l / 1,5 l | — | Fyrir spenaúða |
Meðferð og viðhald
Svona endist IK-kúturinn árum saman
Það sem drepur úðakút er sjaldnast kúturinn sjálfur heldur þéttin: efni sem fær að standa í honum, þétti sem þorna, frost í skúrnum og spíss sem er hreinsaður með nál. Allt eru það hlutir sem tekur tvær mínútur að koma í veg fyrir.
Leiðbeiningarnar hér byggja á handbókum IK. Þær gilda um alla kútana, handknúna jafnt sem rafhlöðudrifna; á rafhlöðukútunum bætist við að taka rafhlöðuna úr og geyma hana hlaðna á frostlausum stað.
Eftir hverja notkun — fimm skref
- Losaðu þrýstinginn. Togaðu í öryggisventilinn þar til hvissið hættir, eða settu hann í stöðu fyrir sjálfvirka þrýstilosun á þeim kútum sem hafa hana. Kútur sem stendur undir þrýstingi á milli verka þreytir þéttin og kútinn sjálfan.
- Tæmdu kútinn. Ekki geyma efnið í kútnum. Afgangi er fargað eftir reglum um efnið — aldrei í niðurfall nálægt vatni eða brunnum. Á PRO-kútum má nota PRO-lokið til að geyma blönduna lokaða til næstu notkunar.
- Skolaðu með hreinu vatni. Fylltu kútinn af vatni, dældu upp og úðaðu því í gegnum slöngu, rör og spíss. Þá skolast efnið líka úr ventlinum og spíssinum, þar sem það annars þornar og stíflar.
- Láttu þorna opinn. Skrúfaðu dæluna eða lokið af og láttu kútinn standa opinn á hvolfi svo hann þorni að innan.
- Læstu handfanginu. Stóru PRO-kútarnir eru með læsingu á handfanginu. Hún kemur í veg fyrir að kúturinn úði óvart þegar hann er tekinn upp næst.
Reglulega
Smyrðu þéttin
Nokkrir dropar af olíu eða feiti á hreyfanlega hluti dælunnar og á O-hringinn í lokinu lengja líf þéttanna verulega — það segir IK sjálft í handbókinni.
Þurrt þétti slitnar hratt og byrjar að leka lofti; dælan verður þung og kúturinn nær ekki upp þrýstingi.
Hreinsaðu spíssinn og síuna
Stíflaður spíss er skrúfaður af og hreinsaður með vatni. Aldrei nota nál, vír eða önnur málmáhöld — gatið rispast og úðinn verður ójafn.
Í handfangi stærri kútanna er sía. Ef handfangið stíflast: losaðu gripið og hreinsaðu síuna.
Skiptu um slitna hluti
IK selur þjónustusett fyrir hverja línu með þeim hlutum sem slitna fyrst: O-hringjum, þéttikraga, ventli og spíss. Það er brot af verði nýs kúts.
Skemmd slanga, sprunginn kútur eða brotið handfang er hins vegar ekki lagað — því er skipt út fyrir nýjan hlut.
Geymdu kútinn rétt
IK segir 5–30 °C, í skjóli frá frosti og miklum hita. Á Íslandi þýðir það: ekki í bílnum eða óupphituðum skúr yfir veturinn. Í kulda harðna þétti og slöngur og fara að leka.
Geymdu kútinn tóman, hreinan og þrýstingslausan.
Aldrei: skrúfa lokið eða dæluna af meðan þrýstingur er á kútnum · loka, fikta í eða berja á öryggisventilinn · blása í spíss eða ventil með munninum · blanda ólíkum efnum í sama kút · úða á fólk, dýr, rafbúnað eða nálægt opnum eldi.
Bilanaleit
Kúturinn lætur illa — hvað er að?
Flestar bilanir í úðakútum eru þétti eða stífla og lagast með þjónustusetti eða vatni. Hér eru þær algengustu.
| Einkenni | Líkleg orsök | Lausn |
|---|---|---|
| Nær ekki upp þrýstingi, hvissar við lokið | O-hringur eða þéttikragi í loki slitinn, óhreinn eða þurr | Hreinsaðu og smyrðu; skiptu um ef hann er sprunginn eða flatur (þjónustusett) |
| Dælan er þung eða gengur ekki niður | Þurr þétti á dælustönginni | Nokkrir dropar af olíu eða feiti á stöngina og þéttið |
| Ójafn úði, dropar eða bunur | Spíss stíflaður eða slitinn | Hreinsaðu með vatni — aldrei með málmi; skiptu um spíss ef hann er slitinn |
| Úðar ekki þótt þrýstingur sé á | Sía í handfangi stífluð eða efni þornað í ventli | Hreinsaðu síuna; skolaðu kútinn með vatni og úðaðu í gegn |
| Lekur við handfang eða slöngutengi | Þétti í handfangi eða tengi slitið | Handfangasett eða nýtt þétti; ónýt slanga er endurnýjuð |
| Kvoðukútur gefur blauta, þunna froðu | Filtpúði óhreinn eða rangur, of lítill þrýstingur eða röng blöndun | Hreinsaðu eða skiptu um filt, dældu þar til öryggisventillinn opnast og blandaðu eins og framleiðandi sápunnar segir |
| Kúturinn bólginn, mislitur eða þéttin bólgin | Efnið hentar ekki kútnum | Hættu notkun og veldu rétta línu (sjá efnatöfluna) |
Varahlutir
Þjónustusett og varahlutir
Þjónustusettin innihalda þá hluti sem slitna fyrst í hverri línu. Myndböndin frá IK sýna hvernig skipt er um þá — það tekur nokkrar mínútur og krefst engra sérverkfæra. Myndböndin eru á ensku.
Varahlutir og aukahlutir á lager
Myndbönd
IK-kútarnir í notkun
Fimmtán myndbönd frá IK um línurnar og hvernig þær eru notaðar, í sömu röð og línurnar hér að ofan. Þau eru á ensku.
Fróðleikur
Hvernig þrýstiúðari virkar
Þegar þú dælir þjappar þú lofti saman ofan við vökvann í kútnum. Loftið ýtir á vökvann, upp rörið og út um spíssinn þegar þú opnar handfangið. Þrýstingurinn fellur jafnt og þétt eftir því sem kúturinn tæmist — þess vegna þarf að dæla aftur á milli, nema á rafhlöðukútunum sem halda jöfnum þrýstingi.
Öryggisventillinn setur þak á þrýstinginn. Á litlu handkútunum er það 2,5–4 bar, á stálkútunum 6 bar. Það er líka hann sem þú notar til að losa þrýstinginn áður en lokið er opnað.
Keiluspíss
Stillanlegur frá mjórri bunu yfir í víða úðaþoku. Úðinn kemur út í hring og hentar á hluti sem eru óreglulegir í laginu: vélarhluti, felgur, plöntur.
Flatspíss
Úðar í flatri, jafnri rönd. Hentar á slétta fleti — gólf, veggi, bílhliðar — því hver ferð leggur jafnt magn og skarast hreint við þá næstu.
Froðuspíss
Loft blandast sápunni í gegnum filtpúða við spíssinn. Útkoman er þétt froða sem loðir við lóðrétta fleti og gefur efninu tíma til að vinna.
Algengar spurningar
Hvaða IK-kút á ég að velja?
Byrjaðu á efninu sem fer í kútinn, ekki stærðinni. Olíur, leysiefni, bremsu- og tjöruhreinsir fara í HC. Sýrur, sótthreinsiefni og hlutlaus hreinsiefni í MULTI. Basísk efni, alkóhól og asetón í ALK. Sápa sem á að verða að froðu í FOAM.
Stærðin ræðst svo af verkinu: 1–1,5 lítra handkútur fyrir verkstæðið, 6–10 lítrar með slöngu og röri fyrir stærri fleti og rafhlöðudrifinn kútur þegar unnið er lengi í einu.
Má nota sama kútinn fyrir mismunandi efni?
Helst ekki. Efnaleifar í kútnum geta hvarfast við næsta efni, og þétti sem hafa staðið í efni sem þau þola ekki eldast hratt. Margir hafa einn kút fyrir hvert efni og merkja hann skýrt. Ef skipta þarf um efni: skolaðu kútinn mjög vel með vatni fyrst og vertu viss um að nýja efnið sé innan línu kútsins.
Af hverju lekur kúturinn lofti eftir nokkra mánuði?
Langoftast er það O-hringurinn eða þéttikraginn í lokinu sem hefur þornað, óhreinkast eða slitnað. Hreinsaðu hann og smyrðu, og ef hann er sprunginn eða flatur skaltu skipta um hann með þjónustusetti. Við eigum varahluti í flesta IK-kúta.
Má tengja kútinn við loftpressu?
Aðeins ef hann er gerður fyrir það. IK FOAM PRO 2+ er með Schrader-lofttengi til þess. Hinir handknúnu kútarnir eru ætlaðir fyrir handdælu eingöngu og IK tekur fram að þá á ekki að tengja við utanaðkomandi þrýsting. Öryggisventlinum má aldrei loka eða breyta.
Hvernig fæ ég þykkari froðu úr FOAM-kútnum?
Blandaðu sápuna í þeim hlutföllum sem framleiðandi hennar gefur upp, dældu þar til öryggisventillinn opnast og hafðu filtpúðana hreina. Veldu rétta filtinn: hvíti filtinn er fyrir öll efni nema mjög sterk basísk efni, og grái filtinn fyrir sterk basísk efni (pH 11–14). e FOAM PRO 2 er með þrjá froðublandara — blauta, miðlungs og þurra froðu.
Hvað er öryggisventillinn að gera?
Hann losar loft þegar þrýstingurinn nær hámarki kútsins — 2,5 til 6 bar eftir gerð — svo aldrei er hægt að dæla of miklu í hann. Með honum tæmir þú líka þrýstinginn áður en lokið er skrúfað af. Á stóru PRO-kútunum sýnir hann grænt þegar þrýstingur er nægur.
Hvernig geymi ég kútinn yfir veturinn?
Tóman, skolaðan, þrýstingslausan og opinn, innandyra þar sem hitinn er á bilinu 5–30 °C. Frost er það sem fer verst með þétti og slöngur; þau harðna og byrja að leka.
Fást varahlutir í kútinn minn?
Já, í flesta. Við eigum þjónustusett, spíssa, loftventla, dælur, slöngur, rör og framlengingar í IK-kútana — sjá varahlutaröðina hér að ofan. Ef þú finnur ekki hlutinn, hringdu eða sendu okkur línu með gerðinni á kútnum og við finnum hann.
Vantar þig ráð um rétta kútinn?
Segðu okkur hvaða efni á að fara í kútinn og í hvaða verk, og við finnum rétta línuna og stærðina — og varahlutina í þann sem þú átt nú þegar.
Síminn: 530 5900










































