Greenworks · POWERALL 24V
Greenworks rafmagnsverkfæri: ein rafhlaða, allt verkstæðið
Borvélar, sagir, herslulyklar, slípun, ljós og dekkjaverkfæri — yfir þrjátíu tæki sem ganga öll fyrir sömu 24 volta rafhlöðunni. Þú kaupir rafhlöðuna og hleðslutækið einu sinni; eftir það ertu bara að bæta við tækjum. Við erum söluaðili Greenworks á Íslandi.

Kerfið á bak við tækin
POWERALL 24V er rafhlöðukerfi, ekki eitt tæki. Sama rafhlaðan smellur í borvélina, hjólsögina, vinnuljósið, loftdæluna og bónvélina — og Greenworks byggir allt 24 volta úrvalið sitt á henni. Þess vegna er stór hluti tækjanna seldur án rafhlöðu: þegar þú átt eina er næsta tæki bara tækið.
Fyrsta tækið og öll hin
Fyrsta kaupin eru dýrust af því að þau bera rafhlöðuna og hleðslutækið. Eftir það lækkar hvert tæki sem þú bætir við, því þú ert hættur að kaupa rafhlöður aftur og aftur handa ólíkum merkjum.
- Sett fyrir fyrstu kaupin — tæki, rafhlaða, hleðslutæki og kassi.
- „Án rafhlöðu” eftir það; vöruheitin segja alltaf hvort rafhlaða fylgir.
- Engin snúra og engin loftpressa — líka þar sem engin innstunga er.


Rafhlaðan er líka hleðslubanki
Allar 24 V rafhlöðurnar okkar eru með USB-C tengi, og 4 Ah rafhlaðan er með tvívirkt tengi — hún hleðst um USB-C og hleður önnur tæki um sama tengi. Síminn, heyrnartólin og spjaldtölvan eru því á sömu rafhlöðu og borvélin þegar þú ert úti á landi.
- 2, 4 og 6 Ah — allar með USB-C.
- 200 W hleðslutækið hleður tvær rafhlöður samtímis.
- 65 W og 100 W hleðslutækin hlaða líka símann og fartölvuna.
Rafhlöður
| Rafhlaða | Vörunúmer | Til hvers |
|---|---|---|
| Rafhlaða 2 Ah | BA2420CA1 | USB-C tengi. Léttasta rafhlaðan — fyrir ljós, juðara, heftibyssu og vinnu uppi í stiga. |
| Rafhlaða 4 Ah | PA400XA1 | Tvívirkt USB-C tengi. Almenna rafhlaðan: nóg úthald fyrir sagir og herslulykla án þess að verða klossi. |
| Rafhlaða 6 Ah | BA2460CA1 | 129 Wh og USB-C tengi. Fyrir langar lotur — slípirokk, geirungssög og heilan dag í bílskúrnum. |
Hleðslutæki og snúrur
| Búnaður | Vörunúmer | Lýsing |
|---|---|---|
| Hleðslutæki 65 W | AP065EAA2 | Tvö USB-C tengi og eitt USB-A. Snúra seld sér. |
| Hleðslutæki 100 W | AP100EAA2 | Tvö USB-C tengi og eitt USB-A. Snúra seld sér. |
| Hleðslutæki 200 W / 8 A | CB208EAA1 | Hleður tvær 24 V rafhlöður samtímis, með hleðsluvísum. |
| USB-C snúra 1 m | ACB1CCAA1 | Allt að 100 W, fléttuð nælonhlíf og E-Marker flaga. |
Garðtækin deila sömu rafhlöðu. 48 V tækin ganga fyrir tveimur 24 V rafhlöðum í einu — það sést í heitunum („48V sláttuvél 2 x 4Ah”). Við tókum spennukerfin saman í leiðbeiningum um rafhlöður Greenworks.
Bora, skrúfa og herða
Þetta er kjarninn í línunni og þar sem munurinn á venjulegu tæki og PRO tæki sést best: 45 Nm borvél fyrir heimilið, 90 Nm PRO borvél fyrir þyngri verk, og herslulyklar frá 200 upp í 500 Nm þegar boltinn gefur sig ekki.
Borvélar og höggborvélar
Borvélin borar og skrúfar í tré, plötuefni og þunnan málm. Höggborvélin með SDS-festingu er annað tæki: hún bætir höggi við snúninginn og fer í steypu og múr, með fjórum vinnustillingum fyrir borun og meitlun.
- DD345A1 — 45 Nm og tveir gírar, kemur með 2 Ah rafhlöðu.
- HD560A2 PRO sett — 60 Nm, tvær rafhlöður og kassi.
- DD590A1 PRO — 90 Nm með 4 Ah rafhlöðu.
- GD24SDS2 — 2 J högg, SDS-festing, fjórar stillingar.


Herslulyklar og skrúfvélar
Höggskrúfvélin skrúfar langar skrúfur sem borvélin ræður ekki við. Herslulyklarnir eru fyrir bolta: sá netti fer í 200 Nm og kemst í þröng rými, PRO lykillinn fer í 500 Nm og er það sem þú vilt undir bílnum.
- ID3220A2 — 220 Nm höggskrúfvél, kolalaus mótor.
- IW3200 3/8″ — allt að 200 Nm, nett og létt.
- IW5500 PRO 1/2″ — 500 Nm, kolalaus mótor.
- Borar og bitar — 22 stk. títan Hex-sett og 60 stk. sett í tösku.
| Tæki | Gerð | Afl og búnaður |
|---|---|---|
| Borvél með 2 Ah rafhlöðu | DD345A1 | 45 Nm, tveir gírar. Sett með rafhlöðu, hleðslubúnaði og tösku. |
| PRO borvélasett | HD560A2 | 60 Nm. Með 2 Ah og 4 Ah rafhlöðum, USB-C hleðslutæki og geymslukassa. |
| PRO borvél með 4 Ah rafhlöðu | DD590A1 | 90 Nm. Borun, skrúfun og almennt viðhald. |
| Höggskrúfvél | ID3220A2 | 220 Nm, kolalaus mótor. Fyrir festingar og smíði. |
| Herslulykill 3/8″ | IW3200A1 | Allt að 200 Nm, kolalaus mótor. Nett tæki fyrir þröng rými. |
| PRO herslulykill 1/2″ | IW5500 | 500 Nm, kolalaus mótor. Hjólbolta- og undirvagnsvinna. |
| Höggborvél með SDS-festingu | GD24SDS2 | 2 J höggorka og fjórar vinnustillingar — borun og meitlun í steypu og múr. |


Sagir
Fjórar sagir og ein fræsari sem leysa ólík verk. Hjólsögin tekur löngu, beinu skurðina, geirungssögin nákvæmu hornin, stingsögin bogana — og fjölnotavélin kemst þangað sem engin þeirra kemst.
Hjólsög, 165 mm
Löng, bein snið í plötur og borð. Kolalaus mótor, beinn skurður og hallaskurður.
Geirungssög, 216 mm
Nákvæm horn og endaskurðir. Rennibraut fyrir breiðari efni og kolalaus mótor.
Stingsög
Bogar, útskurðir og þröng snið. Allt að 3.000 slög á mínútu með kolalausum mótor.
Fjölnotavél
Skurður, slípun og sköfun í þröngum rýmum — frágangstækið á endurbótaverkinu.




| Sög | Gerð | Lýsing |
|---|---|---|
| Hjólsög, 165 mm blað | CR3165 | Kolalaus mótor. Beinn skurður og hallaskurður. |
| Geirungssög, 216 mm blað | MS5216 | Kolalaus mótor og rennibraut fyrir breiðari efni. |
| Stingsög | GD24JS | Kolalaus mótor, allt að 3.000 slög á mínútu. |
| Fjölnotavél | MT332 | Skurður, slípun og sköfun — tækið sem kemst þangað sem hin komast ekki. |
| Gipsfræsari | G24SS | Útskurðir í plötuefni við innréttingar og viðhald. |
Slípun, skurður í málm og yfirborð
Slípirokkurinn sker og slípar málm, juðararnir tveir sjá um tré og spörtl, og bónvélin klárar lakkið. Öll á sömu rafhlöðunni og allt án snúru — sem skiptir mestu einmitt þegar þú ert kominn út fyrir vinnubekkinn.
PRO slípirokkur
900 W mótor, 125 mm skífa, þrjár hraðastillingar.
Juðari fyrir 1/4 úr örk
Undirvinna og yfirborðsfrágangur á flötum.
Hjámiðjujuðari, 5″
Slípun og frágangur í smíði og viðhaldi.
Bónvél, 25,4 cm skífa
Tveggja handa grip fyrir yfirborðsmeðferð á lakki.
Málmurinn: slípirokkur
PRO slípirokkurinn er 900 W með 125 mm skífu og þremur hraðastillingum. Hann sker bolta, ryðgaða festingu og þunnt járn þar sem engin innstunga er — í útihúsinu, á planinu eða undir bílnum.
- 900 W og 125 mm skífa.
- Þrjár hraðastillingar fyrir ólík efni.
- Án snúru — engin framlengingarsnúra út á plan.


Tréð: juðarar
Juðarinn fyrir fjórðung úr örk er flatur og nær alveg upp að kanti — hann er tækið í spörtl, lista og gluggakarma. Hjámiðjujuðarinn með 5 tommu diski tekur stærri fleti hraðar og skilur eftir sig færri rispur.
- 1/4 úr örk — flatur, kemst í horn.
- 5″ hjámiðja — stærri fletir, mýkra yfirborð.
- Sama rafhlaðan og í söginni sem skar efnið.
Lakkið: bónvél
Bónvélin er með 25,4 cm skífu og tveggja handa grip. Hún er hugsuð fyrir bón og yfirborðsmeðferð á lakki — bíllinn, hjólhýsið eða báturinn — og af því að hún er á rafhlöðu þarftu ekki snúru út á stæði.
- 25,4 cm skífa og tveggja handa grip.
- Engin snúra að flækjast um bílinn.
- Sama rafhlaðan og í loftdælunni og tjakknum.

Festingar og frágangur
Þrjú tæki sem leysa af hólmi loftpressu, hamar og handafl. Naglabyssan og heftibyssan ganga beint á rafhlöðunni — enginn barki, engin pressa, ekkert að draga á eftir sér um húsið.
Naglabyssa og heftibyssa
Naglabyssan er fyrir lista og húsgagnasmíði og vinnur án loftpressu. Heftibyssan er fyrir klæðningu, húsgagnavinnu og frágang. Báðar skila jafnri festingu í hvert skipti, sem er einmitt það sem hamarinn gerir ekki.
- GD24BN naglabyssa — listar og húsgögn, engin loftpressa.
- G24CS10 heftibyssa — klæðning og frágangur.
- Ein hönd laus til að halda verkinu á sínum stað.


Kíttisgrind
Kíttisgrindin er með sex hraðastillingum og allt að 2.900 N þrýstikrafti. Hún gerir það sem handgrindin gerir ekki: heldur jöfnum hraða alla rennuna, svo kíttisröndin verður jöfn frá byrjun til enda — líka í köldu kítti.
- Sex hraðastillingar eftir þykkt efnisins.
- Allt að 2.900 N þrýstikraftur.
- Jöfn renna frá byrjun til enda, án þreytu í hendinni.
Bíllinn og bílskúrinn
Hér fer 24 V kerfið út fyrir smíðina. Herslulykill, tjakkur, loftdæla og undirhúddsljós eru öll á sömu rafhlöðunni — og hjólaskipti á stæðinu verða verk sem þarf hvorki snúru né handafl.
Herslulykill
Hjólboltar af og á með tog í stað handafls. 200 Nm nett eða 500 Nm PRO.
Bílatjakkur
Rafhlöðuknúinn tjakkur fyrir hjólaskipti, með innbyggðum ljósum og sjálflæsingu.
Loftdæla, 11 bör
Dekk, bolti og uppblásanlegt. Sama rafhlaða og í hinu — engin innstunga.
Undirhúddsljós
LED-ljós sem festist undir húddið og lýsir vélarrúmið með stillanlegri birtu.

Hjólaskiptin í einum kassa
Tjakkur, herslulykill og loftdæla á sömu rafhlöðunni gera vetrardekkjaskiptin að hálftíma verki í stæðinu heima — án þess að leggjast á hnén með krossinn eða draga snúru út í kuldann.
- Tjakkurinn lyftir og læsir sig sjálfur.
- Herslulykillinn losar og herðir boltana.
- Loftdælan stillir þrýstinginn þegar dekkið er komið á.
Herðu alltaf síðasta hringinn með togskiptilykli upp í það tog sem framleiðandi bílsins gefur upp. Herslulykill er til að koma boltanum á — togið á að vera mælt.
Ljós og þægindi
Stærsti einstaki flokkurinn í línunni hjá okkur er ljós — frá 200 lúmen vasaljósi upp í 3.000 lúmen á þrífæti. Allt á sömu rafhlöðunni og restin, sem þýðir birtu þar sem engin innstunga er: í útihúsinu, undir bílnum, í sumarbústaðnum.
Vinnuljós
Ljósin okkar spanna allt frá litla 200 lúmen ljósinu með 90° stillanlegum haus upp í þrífótarljósið með 3.000 lúmen og þremur birtustillingum. Á milli eru 2.000 lúmen vinnuljósið og undirhúddsljósið fyrir vélarrúmið.
- 200 lm — vasaljós með þremur stillingum og 90° haus.
- 1.200 lm — undirhúddsljós fyrir bílaviðgerðir.
- 2.000 lm — vinnuljós með stillanlegum haus.
- 3.000 lm — á þrífæti eða sem leitarljós með krók.


Lukt og vifta
LED-luktin gefur allt að 500 lúmen í 360° — hún lýsir rými frekar en flöt, og fer jafn vel í tjaldið og í bílskúrinn. Viftan er með fimm hraðastillingum, stillanlegum halla og upphengjukrókum, fyrir verkstæðið eða útileguna.
- 500 lm lukt með 360° ljósdreifingu.
- Vifta með fimm hraðastillingum og krókum.
- Sama rafhlaðan og í borvélinni í næsta hólfi.
Frá framleiðanda
Tólf myndbönd frá Greenworks
Evrópurás Greenworks sýnir tækin í vinnu — stutt myndbönd, eitt um hvert tæki, og eitt um kerfið sjálft. Þau eru á ensku en handtökin og tækin sjást skýrt.
Módelkóðarnir sem sjást á skjánum eru evrópskir kóðar Greenworks og eru ekki alltaf nákvæmlega sömu vörunúmer og hjá okkur. Vöruheitin í versluninni gilda — hringdu í 530 5900 ef þú vilt staðfesta hvaða gerð þú ert að skoða.
Í vefversluninni
Greenworks rafmagnsverkfæri hjá okkur
Hér er allt POWERALL 24V úrvalið okkar í einni röð, raðað eftir verði frá því ódýrasta — garðtækin eru ekki með, þau eiga sína eigin umfjöllun á Greenworks-síðunni. Verð og lagerstaða eru uppfærð í rauntíma.
Tæki sem er merkt Væntanlegt er ekki til á lager núna en er á leiðinni. Hringdu í 530 5900 og við segjum þér hvenær næsta sending kemur.
Algengar spurningar
Passar sama rafhlaðan í öll tækin?
Já, innan 24 V kerfisins. Öll POWERALL 24V tæki nota sömu rafhlöðuna, hvort sem það er borvél, hjólsög, vinnuljós eða loftdæla — og Greenworks segir sjálft að rafhlaðan gangi í öll 24 V tækin sín.
Þetta er ástæðan fyrir því að fyrsta tækið kostar meira en það næsta. Þú kaupir rafhlöðuna og hleðslutækið einu sinni; eftir það ertu að kaupa tækið sjálft.
Af hverju fylgir rafhlaða ekki alltaf með?
Af því að fæstir þurfa fimmtu rafhlöðuna. Stór hluti tækjanna er seldur „án rafhlöðu” (á ensku tool only), og það er ódýrari leiðin um leið og þú átt eina rafhlöðu fyrir.
Ef þetta er fyrsta Greenworks tækið þitt skaltu velja sett — til dæmis PRO borvélasettið, sem kemur með 2 Ah og 4 Ah rafhlöðu, hleðslutæki og kassa. Vöruheitin segja alltaf hvort rafhlaða fylgir.
Hvað þýðir PRO?
PRO er efra þrepið í 24 V línunni. Greenworks lýsir því sjálft sem „enhanced performance and durability for demanding applications” — meira afl og meira þol fyrir krefjandi verk.
Í vörulistanum okkar sést þetta í tölunum: venjulega borvélin er 45 Nm, PRO borvélin 90 Nm, og PRO herslulykillinn fer í 500 Nm þar sem sá nettari er 200 Nm. PRO tækin eru líka þau sem eru lýst með kolalausum mótor.
Hvað er kolalaus mótor og skiptir hann máli?
Kolalaus mótor (á ensku brushless) hefur engin kolaburst sem slitna og nuddast. Greenworks lýsir ávinningnum þannig: meira tog, hljóðlátari gangur og lengri líftími.
Í reynd skiptir hann mestu þar sem tækið er undir álagi í langan tíma — hjólsögin, geirungssögin, stingsögin, höggskrúfvélin og herslulyklarnir eru öll með kolalausum mótor hjá okkur.
Get ég notað 24 V rafhlöðuna í 48 V garðtækin?
Já — 48 V tækin ganga fyrir tveimur 24 V rafhlöðum í einu. Það sést beint í vöruheitunum okkar: „48V sláttuvél 2 x 4Ah”, „48V laufsuga og blásari 2x4Ah”.
Þannig flyst sama rafhlaðan á milli bílskúrsins og garðsins. Garðtækin eiga sína eigin umfjöllun á Greenworks-síðunni okkar, og slátturóbótarnir sína á AiMowbot-síðunni — þeir eru reyndar með innbyggða rafhlöðu og taka ekki POWERALL rafhlöður.
Hvaða rafhlöðustærð á ég að velja?
2 Ah er léttust og best þar sem þú heldur á tækinu lengi eða ert uppi í stiga — ljós, juðari, heftibyssa. 4 Ah er almenna stærðin. 6 Ah (129 Wh) er fyrir tækin sem taka virkilega á: slípirokk, geirungssög og herslulykla.
Flestir enda með tvær: eina létta og eina stóra, og hlaða þá sem er ekki í notkun. Átakið sjálft kemur frá tækinu, ekki rafhlöðunni — stærri rafhlaða gefur lengri lotu, ekki sterkari borvél.
Hvað er USB-C tengið í rafhlöðunni fyrir?
Rafhlöðurnar okkar eru allar með USB-C tengi, og 4 Ah rafhlaðan er með tvívirkt tengi — hún hleðst um USB-C og hleður önnur tæki um sama tengi.
Í reynd þýðir það að 24 V rafhlaðan virkar líka sem hleðslubanki fyrir símann á ferðinni, og að þú getur hlaðið hana með venjulegu USB-C hleðslutæki. Greenworks selur 65 W og 100 W hleðslutæki með tveimur USB-C tengjum og einu USB-A.
Duga þessi verkfæri í atvinnunotkun?
Það fer eftir tækinu og eftir verkinu. PRO línan er sú sem Greenworks skilgreinir fyrir krefjandi verk, og tölurnar — 500 Nm herslulykill, 900 W slípirokkur, 2 J SDS höggborvél — eru á því róli.
Við seljum þessi tæki bæði í bílskúra og á verkstæði. Ef þú ert að velja fyrir daglega atvinnunotkun skaltu hringja í 530 5900 og segja okkur hvað á að gera — við segjum þér hreinskilið hvort PRO tækið dugar eða hvort annað merki á betur við.
Hvaða bor og bita þarf ég?
Fyrir tré og flestar málmplötur duga venjulegir HSS-borar; við eigum 22 stykkja títanhúðað borasett með sexkantsfestingu sem smellur beint í skrúfvélina, og 60 stykkja bora- og bitasett í tösku.
Í steypu og múr þarf SDS-bor — hann passar ekki í venjulegan patrónuhaus og er það sem skilur höggborvélina frá borvélinni.
Fæ ég varahluti, ráðgjöf og þjónustu?
Já. Við erum söluaðili Greenworks á Íslandi og eigum rafhlöður, hleðslutæki og algengustu aukahluti, ýmist á lager eða með stuttum fyrirvara.
Hringdu í 530 5900 eða kíktu við ef þú ert ekki viss hvaða tæki eða rafhlaða hentar verkinu þínu.
Hvernig geymi ég rafhlöðurnar yfir veturinn?
Okkar ráð: geymdu þær inni, frostlaust og þurrt, og settu þær í hleðslu af og til í stað þess að skilja þær eftir tómar fram á vor. Lithium-rafhlaða sem stendur tóm mánuðum saman endist verr.
Ekki geyma rafhlöðu í óupphituðum skúr eða í bílnum yfir nóttina í frosti. Látið hana ná stofuhita áður en þið hlaðið hana.
Ekki viss hvar á að byrja?
Algengasta byrjunin er borvélasett og ein aukarafhlaða — eftir það ræðurðu hraðanum sjálfur. Hringdu í 530 5900 eða kíktu við og segðu okkur hvað á að gera; við förum yfir hvaða tæki og hvaða rafhlöðustærð hentar, og segjum þér hreinskilið ef annað merki á betur við verkið.































