Greenworks

Hvaða rafhlaða hentar þér?

Spennan ræður afli, amperstundirnar úthaldi og spennukerfið því hvað passar í hvað. Hér förum við yfir rafhlöðukerfi Greenworks, hvaða kerfi hentar hvaða garði og hvað af því er til hjá okkur.

Greenworks 24 V POWERALL rafhlaða 6 Ah með USB-C-tengi og 24 V tvíhleðslutæki 200 W
Volt = aflHversu miklu afli rafhlaðan skilar tækinu
Ah = úthaldHversu lengi hún endist á milli hleðslna
24 V hjá okkurKerfið sem allar rafhlöðurnar okkar tilheyra
48 V = 2 × 24 VStærri vélarnar taka tvær 24 V rafhlöður

Spenna og amperstundir

Tvær tölur skipta máli þegar rafhlaða er valin: spennan í voltum og getan í amperstundum. Sú fyrri segir til um afl, sú síðari um hversu lengi tækið gengur.

Spenna (Volt)

Spennan segir til um hversu miklu afli rafhlaðan skilar tækinu. Hærri spenna þýðir meira afl og vélin vinnur hraðar í þyngri verkum.

Amperstundir (Ah)

Amperstundirnar segja til um hversu lengi rafhlaðan knýr tækið áður en hlaða þarf hana aftur. Hærri tala þýðir lengri vinnslutíma og færri hleðslur.

Dæmi: 24 V 4 Ah rafhlaða endist um tvöfalt lengur í sama tæki en 24 V 2 Ah. Á móti kemur að það tekur lengri tíma að fullhlaða hana.

Rafhlöðukerfin

Greenworks er með nokkur spennukerfi og þau eru lokuð hvert fyrir sig, svo rafhlaða úr einu kerfi passar ekki í tæki úr öðru. Úrvalið okkar byggir á 24 V kerfinu og 2 × 24 V vélarnar nota sömu rafhlöður. 40 V og 60 V línurnar eru hér til samanburðar.

24 V

24 V línan er ætluð í heimilisgarðinn og almenn verkefni heima við. Undir henni eru borvélar, sagir, sláttuvélar og fleira, og hún hentar litlum til meðalstórum görðum.

Markhópur

Byrjendur og áhugafólk um garðrækt

GarðþarfirMinni garðar, allt að 200 m², létt sláttuvinna og almenn garðumhirða
AflþörfLágt til miðlungs afl: að snyrta gras, klippa smærri runna og önnur léttari verk
Kostir· Létt og auðvelt í notkun
· Hagkvæmt kerfi
· Hraðhleðsla og nægilegt afl fyrir létt verkefni
· Sama rafhlaða gengur í öll 24 V tækin

✓ Í okkar úrvali

24 V + 24 V (48 V)

Þessi tæki taka tvær 24 V rafhlöður í einu og skila tvöföldu afli á við eina. Það munar um það í meðalstórum görðum og í þyngri verkum, til dæmis þegar grasið er hátt eða saga þarf smærri greinar.

Markhópur

Garðeigendur með meðalstóra garða sem þurfa meira afl

GarðþarfirGarðar frá 200 m² upp í 500 m², með reglulegum krefjandi verkefnum
AflþörfMiðlungs til mikið afl fyrir erfiðari verkefni
Kostir· Tvöfalt rafhlöðukerfi fyrir krefjandi notkun
· Notar sömu 24 V rafhlöður og léttu tækin
· Gott jafnvægi milli afkasta og verðs

✓ Í okkar úrvali

40 V

40 V línan skilar meira afli og er ætluð meðalstórum og stærri görðum, þar sem slá þarf hærra gras eða klippa stærri runna og hekk.

Markhópur

Garðeigendur með meðalstóra til stærri garða

GarðþarfirGarðar frá 500 m² upp í 800 m², hærra gras, stærri runnar eða hekk
AflþörfMikið afl fyrir miðlungs til krefjandi verkefni
Kostir· Öflug afköst fyrir stærri svæði
· Lengri keyrslutími og meiri sveigjanleiki
· Sérstök rafhlaða og sérstakt hleðslutæki, hvorugt samhæft 24 V kerfinu

— Ekki í okkar úrvali, sýnt til samanburðar

60 V

60 V línan er ætluð stórum görðum og þyngstu verkunum. Hún skilar svipuðum afköstum og bensínvélar, með mun minni hávaða og titringi og engum útblæstri.

Markhópur

Reyndir garðeigendur og þeir sem eru með stóra garða

GarðþarfirGarðar frá 800 m² upp í 1.500 m²
AflþörfMjög mikið afl fyrir erfið og krefjandi verkefni
Kostir· Hámarksafl fyrir stór svæði og þétt gras
· Fagleg gæði fyrir krefjandi notkun
· Sérstök rafhlaða og sérstakt hleðslutæki, hvorugt samhæft 24 V kerfinu

— Ekki í okkar úrvali, sýnt til samanburðar

Hvaða kerfi fyrir hvaða garð?

KerfiGarðurDæmigerð verkefniHjá okkur
24 VAllt að 200 m²Léttur sláttur, kantar, hekk, borvél og sagir✓
2 × 24 V (48 V)200–500 m²Hátt gras, keðjusög, stærri sláttuvél✓
40 V500–800 m²Hærra gras, stærri runnar og hekk—
60 V800–1.500 m²Þétt gras og krefjandi verk, í stað bensíns—
Garðstærðirnar eru viðmið frá Greenworks. Þéttleiki grassins og hversu oft er slegið skiptir meira máli en fermetrafjöldinn.

Allar rafhlöður sem við seljum eru 24 V POWERALL, í stærðunum 2 Ah, 4 Ah og 6 Ah og allar með USB-C-tengi. Hleðslutækin eru sömuleiðis 24 V.

Svona velurðu

  1. Finndu kerfið á tækinu. Það stendur á vélinni sjálfri og í heiti hennar hjá okkur, 24 V eða 48 V. 48 V þýðir tvær 24 V rafhlöður.
  2. Veldu stærðina eftir lotunni. Í stutt verk dugar 2 Ah. Í lengri lotur eins og slátt og sögun er betra að eiga 4 Ah eða 6 Ah.
  3. Tvær eins fyrir 48 V vél. Hún tekur tvær rafhlöður í einu og best er að þær séu jafnstórar.
  4. Veldu rétta hleðslutækið. Tvíhleðslutæki hleður tvær í einu, sem hentar best ef þú átt 48 V vél. USB-C er varaleiðin þegar þú ert að heiman.

Áttu nú þegar Greenworks tæki? Þá áttu líklega rétta rafhlöðu fyrir næsta tæki líka. Athugaðu bara að kerfin séu þau sömu.

Algengar spurningar

Hvað segir spennan (V) mér?

Spennan segir til um hversu miklu afli rafhlaðan skilar tækinu. Hærri spenna þýðir meira afl og vélin vinnur hraðar í þyngri verkum.

Spennan þarf líka að passa: 24 V rafhlaða fer aðeins í 24 V tæki og tækið gengur ekki á rafhlöðu úr öðru kerfi.

Hvað segja amperstundir (Ah) mér?

Amperstundirnar segja til um hversu lengi rafhlaðan knýr tækið áður en hlaða þarf hana aftur. Hærri tala þýðir lengri vinnslutíma og færri hleðslur.

Dæmi: 24 V 4 Ah rafhlaða endist um tvöfalt lengur í sama tæki en 24 V 2 Ah. Á móti kemur að það tekur lengri tíma að fullhlaða hana.

Gefur stærri rafhlaða meira afl?

Nei, amperstundirnar ráða úthaldi en ekki afli. Aflið kemur frá spennunni og mótornum í tækinu sjálfu.

Þess vegna borgar sig stærri rafhlaða fyrir lengri lotur eins og slátt og sögun, frekar en fyrir þung verk í stutta stund.

Hvað þarf ég fyrir 2 × 24 V (48 V) vél?

Tvær 24 V rafhlöður, helst jafnstórar, og hleðslutæki sem hleður tvær í einu. Vélin tengir þær saman og keyrir á 48 V.

Rafhlöðurnar eru þær sömu og í léttu tækjunum, svo þú þarft ekki nýtt kerfi. Þær fara aftur í borvélina þegar slættinum er lokið.

Hvað er 48 V DVT og af hverju sé ég það ekki hér?

Greenworks býður upp á sérstakt 48 V kerfi sem heitir DVT. Það notar eina stærri 48 V rafhlöðu og er ætlað í lengri notkun og þyngri verk, með sínum eigin verkfærum og sínu eigin hleðslutæki.

Athugaðu að 48 V DVT-kerfið er ekki í boði á Íslandi. 48 V vélarnar sem við seljum eru 2 × 24 V vélar og taka tvær venjulegar 24 V rafhlöður.

Get ég notað 40 V eða 60 V rafhlöðu í 24 V tæki?

Nei. Hvert spennukerfi er lokað, festingin og stýringin eru aðrar og rafhlaða úr einu kerfi smellur ekki í tæki úr öðru.

Úrvalið okkar byggir á 24 V kerfinu og 2 × 24 V vélunum, svo allar rafhlöður og öll hleðslutæki sem við seljum vinna saman.

Hvaða rafhlöðustærð á ég að kaupa fyrst?

Fyrir létt tæki sem þú grípur í stutta stund dugar 2 Ah vel. Ætlirðu að slá, saga eða vinna lengur í einu, skaltu byrja á 4 Ah og bæta 6 Ah við seinna.

Áttu 2 × 24 V vél? Þá þarftu tvær. Hringdu í 530 5900 ef þú vilt fara yfir það með okkur.

Enn í vafa?

Hringdu í 530 5900 eða kíktu við. Við förum yfir garðinn og verkefnin með þér og finnum rétta kerfið og réttu rafhlöðustærðina.