Fróðleikur

Smurolía: seigja, staðlar og vottanir

Þrjár upplýsingar á brúsanum ráða því hvort olían passar í vélina: seigjan (5W-30), staðallinn (API, ACEA) og vottun framleiðandans (VW 504 00, MB 229.51). Hér er farið yfir hvað hvert og eitt þýðir — og hvernig þú lest það af brúsanum.

Fjórar smurolíur í röð: 0W-20, 5W-30, 10W-40 og 15W-40
SAESeigjan — hversu þykk olían er köld og heit
API · ACEAGæðastaðallinn — slitvörn, hreinleiki, öskumagn
OEMVottun vélarframleiðandans — VW, MB, BMW, Porsche
HandbókinRæður alltaf. Hún tilgreinir öll þrjú

Hvað gerir smurolían eiginlega?

Smurolía er ekki bara „fita á málm“. Í nútímavél vinnur hún fimm störf samtímis, og staðlarnir sem fjallað er um hér að neðan eru einfaldlega mælikvarðar á hversu vel hún gerir hvert þeirra.

  • Smyr. Heldur olíufilmu milli málmflata sem annars snertust — í sveifarásarlegum er filman þynnri en mannshár.
  • Kælir. Flytur hita frá stimplum, legum og knastási. Í mörgum vélum sér olían ein um að kæla undirhlið stimplanna.
  • Hreinsar. Heldur sóti og slitögnum á floti svo sían nái þeim, og leysir upp útfellingar áður en þær harðna. Þess vegna verður olían svört — það er hún að vinna.
  • Þéttir. Fyllir upp í örfínt bil milli stimpilhringja og strokkveggs og heldur þjöppuninni.
  • Ver. Hlutleysir sýrur sem myndast við bruna og ver gegn ryði og tæringu þegar vélin stendur — ekki síst í bíl sem er lítið keyrður yfir veturinn.

Í íslensku veðri skiptir kaldræsing mestu. Stór hluti af öllu sliti vélarinnar verður á fyrstu sekúndunum eftir ræsingu, áður en olían er komin alla leið upp. Þess vegna er fyrri talan í seigjunni — talan á undan W — ekki smáatriði hér.

Seigjan: hvað 5W-30 þýðir í raun

Seigjutölurnar koma úr staðlinum SAE J300 og lýsa tvennu — hvernig olían hegðar sér köld og hvernig hún hegðar sér heit. Þær segja ekkert um gæði olíunnar; það gera staðlarnir í næsta kafla.

5W — talan á undan W

W stendur fyrir winter, vetur. Þessi tala lýsir hegðun olíunnar í kulda: hversu auðvelt er að snúa vélinni og hversu fljótt olíudælan nær að dæla henni upp.

Lægri tala = þynnri köld = betri kaldræsing. 0W-olía er prófuð við −35 °C þar sem 15W-olía er prófuð við −20 °C.

30 — talan á eftir

Þessi tala lýsir þykkt olíunnar heitri, við 100 °C, þegar vélin er komin á vinnuhita. Hún er ekki hitastig og ekki gæðaeinkunn.

Hærri tala = þykkari olíufilma við vinnuhita. Hvaða tala á við ræðst af hönnun vélarinnar — ekki af því hvað manni finnst öruggara.

Kuldahliðin: W-flokkarnir

Hver W-flokkur er skilgreindur með tveimur kuldaprófunum: CCS mælir hvort startarinn nái að snúa vélinni og MRV hvort dælan nái að dæla olíunni. Hitastigin í töflunni eru prófunarhitastig staðalsins — ekki loforð um lægsta nothæfa hitastig, en þau segja þér hvor olían er betur búin undir janúarmorgun.

SAESnúningsprófun (CCS)Dælanleiki (MRV)Dæmi í okkar úrvali
0W−35 °C−40 °C0W-20 · 0W-30
5W−30 °C−35 °C5W-30 · 5W-40
10W−25 °C−30 °C10W-30 · 10W-40
15W−20 °C−25 °C15W-40
20W−15 °C−20 °C20W-50
Kuldaprófanir SAE J300. Smelltu á seigjuna til að sjá þær olíur sem við eigum.

Hitahliðin: hitagráðan og HTHS

Seinni talan er skilgreind með seigju við 100 °C. Til viðbótar setur staðallinn lágmark á HTHS — seigju við 150 °C undir miklu skriði, sem er næst því sem gerist í raun í legu á fullu álagi. HTHS er ástæðan fyrir því að 5W-30 og 0W-30 geta verið ólíkar olíur þótt tölurnar séu þær sömu, og hún er oft sú tala sem vélarframleiðandi á í raun við þegar hann bannar „þunna“ olíu.

Hitagráðamm²/s við 100 °CHTHS lágmarkDæmigerð notkun
166,1–8,22,3Sparneytnar nýjar vélar, oft japanskar
206,9–9,32,6Nýir fólksbílar og tvinnbílar
309,3–12,52,9Algengasta hitagráðan í fólksbílum í dag
40 (0W-, 5W-, 10W-40)12,5–16,33,5Eldri bensín- og dísilvélar, margar þýskar vélar
40 (15W-40 og þyngri)12,5–16,33,7Atvinnutæki, vinnuvélar, eldri dísilvélar
5016,3–21,93,7Kraftmiklar vélar og keppni
6021,9–26,13,7Keppnisvélar og sérstakar aðstæður
Hitagráður SAE J300. HTHS er lágmark, mælt í mPa·s við 150 °C.
Merking á smurolíubrúsa fyrir fólksbíl: seigja, ACEA- og API-flokkur

Svona lesurðu brúsann

Á framhliðinni stendur seigjan stórum stöfum. Rétt fyrir neðan — eða aftan á — stendur staðallinn (ACEA C3, API SN) og þar undir listi yfir vottanir framleiðenda.

Allar þrjár þurfa að ganga upp. Rétt seigja með röngum staðli er jafn röng olía og rangur staðall með réttri seigju.

Einseigju eða fjölseigju? SAE 30 eða 10W er einseigjuolía — hún hefur enga W-prófun og þykknar mikið í kulda. Slíkar olíur eiga enn við í sláttuvélum, eldri loftkældum vélum, sumum gírkössum og glussakerfum þar sem framleiðandinn tilgreinir þær, en ekki í nútíma bílvél. Fjölseigjuolía (5W-30) notar seigjubæti til að haga sér eins og þunn olía köld og þykk olía heit.

Steinolía, hálfsyntetísk eða fullsyntetísk?

Grunnolían ræður úthaldi olíunnar — hversu lengi hún heldur seigju, hversu vel hún þolir hita og hversu lítið hún gufar upp. Íblöndunarefnin (10–25 % af innihaldinu) sjá svo um slitvörn og hreinsun. Skiptingin hér að neðan fylgir grunnolíuflokkum API.

Steinolía (mineral)

API Group I og II. Hreinsuð úr jarðolíu með hefðbundnum aðferðum.

Ódýrust, en gufar meira upp og þolir hita verr. Á enn vel við í eldri vélum, einföldum gírkössum og þar sem skipt er oft.

Hálfsyntetísk

Blanda af hreinsaðri jarðolíu og syntetískri grunnolíu.

Málamiðlun sem hentar mörgum eldri bílum vel: betri kaldræsing og hitaþol en steinolía, án verðs fullsyntetískrar.

Fullsyntetísk

API Group III (HC/VHVI), IV (PAO) og V (t.d. esterar). Group III er framleidd úr jarðolíu en breytt svo mikið að hún telst syntetísk í Evrópu.

Besta kaldræsing, mesta hitaþol og lengstu skiptibil. Nánast skilyrði fyrir þunnar nútímaolíur (0W-20, 0W-30) — engin steinolía nær þeim tölum.

„Fullsyntetísk“ er ekki staðall. Orðið er ekki lögverndað og segir ekkert eitt og sér um hvort olían passi í þína vél. Það gera API-, ACEA- og OEM-merkingarnar — og þær eru prófaðar.

Staðlarnir: API, ACEA, ILSAC og JASO

Staðall er prófunarröð. Olía sem ber staðalinn hefur staðist tiltekin vélarpróf á slitvörn, hreinleika, oxunarþoli og seigjustöðugleika. Staðallinn er því eina raunverulega gæðaeinkunnin á brúsanum.

API — ameríski staðallinn

S = bensínvélar, C = dísilvélar. Bókstafurinn á eftir hækkar með hverri nýrri kynslóð: SL → SM → SN → SP → SQ, sem hefur verið leyfisskyldur frá 31. mars 2025. Dísilmegin eru CK-4 og FA-4 nýjastar; FA-4 er þynnri og á aðeins við þar sem framleiðandi tilgreinir hana sérstaklega.

Nýrri S-flokkur kemur yfirleitt í stað þess eldri, en ekki alltaf: olíur hafa fengið minna sink og fosfór (ZDDP) með árunum vegna hvarfakúta, og vélar með flatan knastás og stífa ventlafjöðrun — klassískir bílar og eldri amerískar vélar — geta þurft eldri flokk eða olíu sem er sérstaklega merkt með háu ZDDP.

ACEA — evrópski staðallinn

ACEA skiptist í þrjár fjölskyldur. Þetta er sá staðall sem skiptir mestu máli á evrópskum bílum og er nánast alltaf sá sem handbókin tilgreinir.

FlokkurÖskumagnHTHSFyrir hvað
C2Mið-SAPS≥ 2,9Sparneytnar vélar með agnasíu, einkum franskar
C3Mið-SAPS≥ 3,5Algengasti flokkurinn — flestar þýskar vélar með agnasíu
C4Lág-SAPS≥ 3,5Renault og fleiri, þar sem askan má vera enn minni
C5Mið-SAPS2,6–2,9Nýrri sparneytnar vélar, oft 0W-20
C6Mið-SAPS≥ 2,6Nýjasti flokkurinn (2023): bætir við vörn gegn LSPI og forþjöppuútfellingum
ACEA C — olíur fyrir vélar með agnasíu og hvarfakút. HTHS í mPa·s.
FlokkurHTHSFyrir hvað
A3/B4≥ 3,5Bensín- og dísilvélar án agnasíu — hefðbundin „þykk“ nútímaolía
A5/B52,9–3,5Sparneytnari olía fyrir vélar sem eru hannaðar fyrir lægri HTHS
A7/B72,9–3,5Eins og A5/B5 en með LSPI-vörn fyrir forþjappaðar beinnsprautuvélar
ACEA A/B — bensín- og dísilvélar án agnasíu. HTHS í mPa·s.

ACEA E er fyrir dísilvélar í atvinnutækjum og vinnuvélum. E4 og E7 hafa hærri öskumörk og eiga við vélar án agnasíu. E8 og E11 eru lágöskuolíur fyrir vélar með agnasíu og SCR; þær leystu E6 og E9 af hólmi í maí 2024, þannig að olía sem enn ber E6- eða E9-merkingu er ekki gölluð — hún er einfaldlega úr fyrri útgáfu staðalsins.

ILSAC og JASO

ILSAC — Bandaríkin og Japan

GF-6A og GF-6B hafa verið í gildi frá 2020 og GF-7A/GF-7B frá 31. mars 2025 (í takt við API SQ).

B-útgáfan er eingöngu fyrir allra þynnstu seigjurnar (0W-16 og þynnri) og er ekki afturvirk — GF-7B má ekki setja í vél sem biður um GF-7A.

JASO — mótorhjól og tvígengi

MA / MA2 fyrir fjórgengishjól með vothvolfskúplingu: olían má ekki vera of hál, annars slær kúplingin. MB er fyrir hjól með þurrkúplingu eða sjálfskiptingu og skrikar viljandi.

FC / FD eru tvígengisflokkar og lýsa reykmyndun og hreinleika. Aldrei nota venjulega bílaolíu í tvígengisvél.

Heimildir: SAE J300; ACEA Oil Sequences 2023 (léttir bílar) og 2024 rev. 1 (atvinnutæki); API 1509 / ILSAC GF-7. Yfirfarið 12. október 2026.

Vottanir: það sem framleiðandi bílsins krefst

Staðall eins og ACEA C3 er lágmark sem margar ólíkar olíur ná. Bílaframleiðendur setja ofan á hann sínar eigin kröfur — lengri skiptibil, eigin vélarpróf, samhæfni við tiltekinn búnað. Það eru vottanirnar, og þær eru oft það eina sem skiptir máli þegar bíll er í ábyrgð.

„Uppfyllir kröfur“ — meets

Olíuframleiðandinn segir sjálfur að olían standist kröfuna. Enginn þriðji aðili hefur staðfest það og olían er ekki á skrá hjá bílaframleiðandanum.

Yfirleitt í lagi á eldri bíl utan ábyrgðar. Ekki nóg þegar handbókin krefst skráðrar vottunar.

„Samþykkt“ — approved

Olían hefur verið prófuð hjá bílaframleiðandanum, fengið númer og er á opinberum lista hans. Brúsinn ber þá orðalag eins og MB-Approval 229.51 eða VW 504 00.

Þetta er það sem þarf þegar bíllinn er í ábyrgð eða á þjónustusamningi.

Algengustu vottanirnar sem við sjáum

Fólksbílar

Aðrir framleiðendur

Atvinnutæki og vinnuvélar

Vottun er bundin við seigju

MB-Approval 229.51 gildir fyrir tiltekna olíu í tiltekinni seigju. Sama vörulína í annarri seigju er ekki sjálfkrafa með sömu vottun — listinn aftan á brúsanum á við þann brúsa.

Þess vegna dugar ekki að muna vörumerkið; það þarf að lesa brúsann sem maður heldur á.

Merking á smurolíubrúsa fyrir atvinnutæki: seigja, ACEA E-flokkur og API-flokkur

Low-SAPS: af hverju röng olía getur eyðilagt agnasíu

SAPS stendur fyrir Sulphated Ash, Phosphorus, Sulphur — súlfatösku, fosfór og brennistein. Þessi efni koma úr íblöndunarefnum olíunnar og vinna gagnlegt starf: aska úr hreinsiefnum hlutleysir sýrur, fosfór úr ZDDP er slitvörn. Vandinn er það sem verður um þau eftir brunann.

  • Askan brennur ekki. Hún safnast fyrir í agnasíunni (DPF á dísil, GPF á bensín) og hverfur ekki við endurnýjun síunnar. Of mikil aska stíflar síuna varanlega.
  • Fosfór og brennisteinn eitra hvarfakútinn. Þeir húða góðmálmana í kútnum og draga varanlega úr virkni hans.

Þess vegna eru til þrjú stig: full-SAPS (ACEA A3/B4, E4, E7) fyrir vélar án agnasíu, mið-SAPS (ACEA C2, C3, C5, C6) og lág-SAPS (ACEA C4, E8, E11). Full-SAPS olía í vél með agnasíu stíflar síuna löngu fyrir tímann — og það er viðgerð sem kostar margfalt á við olíuskiptin.

Á hinn bóginn er lág-SAPS olía í gamalli vél án agnasíu ekki hættuleg, en hún er oft óþarflega dýr og getur haft minni hreinsigetu en vélin var hönnuð fyrir. Fylgdu handbókinni í báðar áttir.

Hvernig velurðu rétta olíu — fjögur skref

  1. Byrjaðu á handbókinni. Þar stendur seigjan, staðallinn og vottunin, og oft mismunandi seigja eftir hitastigi. Á mörgum bílum stendur seigjan líka á olíulokinu sjálfu.
  2. Veldu seigjuna nákvæmlega. Ekki þynnri en handbókin segir — og ekki þykkari heldur. Í nútímavélum er olíuþrýstingurinn notaður til að stýra knastásum og ventlabúnaði, og röng seigja getur ruglað þann búnað.
  3. Staðallinn má aldrei vera lægri. Hærri staðall er heldur ekki alltaf betri: C3-olía í vél sem biður um C5 er of þykk við vinnuhita, þótt C3 hljómi „sterkara“.
  4. Athugaðu vottunina síðast. Ef handbókin nefnir vottunarnúmer og bíllinn er í ábyrgð, leitaðu að því númeri á brúsanum — ekki bara að staðlinum.

Ertu ekki viss?

Olíuráðgjafinn flettir upp réttri olíu eftir bílnúmeri eða tegund og árgerð og gefur upp seigju, staðal og vottanir fyrir þína vél.

Eða hringdu

Við finnum réttu olíuna með þér og segjum þér hvort hún er til á lager eða þarf að panta. Sími 530 5900.

Fyrir atvinnutæki og vinnuvélar borgar sig að hafa tækjanúmer eða handbók við höndina — vottanirnar þar eru oft sérhæfðari en á fólksbíl.

Smurolíur í okkar úrvali

Hér er þversnið af úrvalinu — flokkurinn telur á annað hundrað olíur. Seigjan stendur í heiti hverrar vöru og staðlarnir og vottanirnar í vörulýsingunni, svo þú getur borið hana beint saman við handbókina þína.

Þú getur líka flett beint eftir seigju: 0W-20 · 0W-30 · 5W-30 · 5W-40 · 10W-30 · 10W-40 · 15W-40 · 20W-50.

Aðrar olíur — og staðlarnir sem gilda um þær

Seigjutölurnar líta kunnuglega út á gírolíu og glussa, en staðlarnir að baki eru allt aðrir. Hér er stutt yfirlit yfir það sem máli skiptir í hverjum flokki.

Gírolía — API GL-4 og GL-5

Seigjan kemur úr SAE J306 (75W-90, 80W-90) og tölurnar eru ekki sambærilegar við vélarolíu: 75W-90 gírolía er um það bil jafn þykk og 10W-40 vélarolía.

GL-5 er ekki „betri“ GL-4. GL-5 hefur meira af þrýstiþolsefnum sem geta tært gulmálm — brons og kopar í samhæfingarhringjum. Í beinskiptum gírkassa sem biður um GL-4 á aldrei að setja GL-5 nema hún sé sérstaklega merkt gulmálmsörugg.

Sjálfskiptivökvi (ATF)

Hér er nánast engin almenn seigjuflokkun — vökvinn er skilgreindur af framleiðandanum: Dexron VI, Mercon LV, ATF+4, og sérvökvar fyrir CVT- og DSG/DCT-skiptingar.

„Universal“ ATF á aðeins við þar sem framleiðandinn samþykkir hann sérstaklega. Rangur vökvi í sjálfskiptingu er dýrasta einfalda mistökin í þessum flokki.

Glussi — ISO VG og DIN 51524

Glussi er flokkaður eftir ISO VG (ISO 3448): 32, 46, 68. Talan er seigjan við 40 °C, ekki 100 °C.

DIN 51524 lýsir gerðinni: HL (grunn), HLP (með slit- og tæringarvörn — algengasta gerðin) og HVLP með seigjubæti fyrir kerfi sem vinna bæði úti í frosti og heit.

Smurfeiti — NLGI

NLGI-flokkurinn (000 til 6) lýsir stífleika: NLGI 2 er dæmigerð koppafeiti, NLGI 00 og 0 eru hlaupkenndar fyrir sjálfvirk smurkerfi og lokaða gírkassa.

Þykkingarefnið skiptir líka máli — litíum, litíumkomplex, kalsíum eða pólýúrea — því ólík þykkingarefni blandast ekki alltaf og geta runnið í sundur.

Algengar spurningar

Hvað þýðir W-ið í 5W-30?

W stendur fyrir winter, vetur. Talan á undan W lýsir því hvernig olían hegðar sér köld — hversu auðveldlega startarinn snýr vélinni og hversu fljótt olíudælan nær henni upp í vélina. Lægri tala þýðir þynnri olía í kulda og þar með betri kaldræsing.

Talan á eftir strikinu er allt annar hlutur: hún lýsir þykkt olíunnar við 100 °C, þegar vélin er orðin heit. Hún er hvorki hitastig né gæðaeinkunn.

Má ég nota 5W-40 í staðinn fyrir 5W-30?

Aðeins ef handbók bílsins heimilar báðar. Þær eru ekki sami hluturinn: 5W-40 er þykkari við vinnuhita og hefur hærra HTHS-lágmark (3,5 á móti 2,9).

Í mörgum eldri vélum er hvort tveggja leyft og þá má velja. Í nýrri vél þar sem olíuþrýstingur stýrir knastásum eða ventlabúnaði getur of þykk olía raskað þeirri stýringu, og í vél sem biður um ACEA C5 eða C6 er 5W-40 einfaldlega röng olía.

Er þynnri olía ekki veikari?

Nei. 0W-20 er ekki „léttvæg“ útgáfa af 5W-30 — hún er hönnuð fyrir vél sem er smíðuð með þrengri legubilum og treystir á þunna olíu til að ná smurningu fljótt og minnka núningstap.

Það sem skiptir máli er ekki hvort talan er lág heldur hvort olían uppfyllir þann staðal og þá vottun sem vélin krefst. Þykkari olía í slíka vél getur í raun aukið slit við kaldræsingu.

Hvað er low-SAPS og af hverju skiptir það máli?

SAPS er súlfataska, fosfór og brennisteinn — leifar úr íblöndunarefnum olíunnar. Askan brennur ekki heldur safnast fyrir í agnasíunni, og fosfór og brennisteinn draga úr virkni hvarfakútsins.

Í bíl með agnasíu (DPF eða GPF) þarf því olíu með takmarkaðri ösku — ACEA C-flokk á fólksbíl, E8 eða E11 á atvinnutæki. Full-SAPS olía í slíka vél stíflar síuna löngu fyrir tímann.

Hver er munurinn á „uppfyllir kröfur“ og „samþykkt“?

„Uppfyllir kröfur“ (meets the requirements of) er yfirlýsing olíuframleiðandans sjálfs. Enginn þriðji aðili hefur staðfest hana og olían er ekki á skrá hjá bílaframleiðandanum.

„Samþykkt“ (approved) þýðir að olían hefur verið prófuð hjá bílaframleiðandanum og fengið númer á opinberan lista — til dæmis MB-Approval 229.51 eða VW 504 00. Ef bíllinn er í ábyrgð er það oft það eina sem gildir.

Má blanda saman tveimur smurolíum?

Í neyð er óhætt að bæta á vélina olíu af annarri gerð, svo framarlega sem hún hefur sömu seigju og að minnsta kosti sama staðal. Það er miklu skárra en að keyra olíulausa vél.

Það á þó ekki að vera varanlegt ástand: íblöndunarefnin eru ólík milli framleiðenda og blandan hefur hvorki þau skiptibil né þá eiginleika sem hvor olían um sig var prófuð fyrir. Skiptu um við fyrsta tækifæri.

Hvað er HTHS og af hverju er talað um það?

HTHS (High Temperature High Shear) er seigja olíunnar mæld við 150 °C undir miklu skriði — aðstæðum sem líkja eftir því sem raunverulega gerist í legu á fullu álagi. Hún er gefin í mPa·s.

HTHS skýrir af hverju tvær olíur með sömu SAE-tölu geta hegðað sér ólíkt: ACEA C3 krefst að lágmarki 3,5 en C5 liggur á bilinu 2,6–2,9. Þegar framleiðandi varar við „of þunnri“ olíu á hann yfirleitt við HTHS, ekki SAE-tölunni.

Hversu oft á að skipta um smurolíu?

Skiptibilið kemur frá bílaframleiðandanum, ekki frá olíunni, og stendur í handbókinni — oftast sem kílómetrafjöldi eða tímabil, hvort sem kemur fyrr. Langskiptiolíur (VW 507 00, BMW Longlife) leyfa lengri bil en aðeins í bílum sem eru stilltir á þau.

Stuttar ferðir í köldu veðri eru erfiðari fyrir olíuna en langkeyrsla, því vélin nær aldrei að brenna burt raka og eldsneytisleifar. Bíll sem er mest notaður í bænum yfir veturinn á því frekar að fara eftir tímabilinu en kílómetrunum.

Af hverju verður olían svört svona fljótt?

Vegna þess að hún er að vinna vinnuna sína. Hreinsiefnin í olíunni halda sóti og slitögnum á floti svo þau setjist ekki á vélarhlutana, og það er einmitt sótið sem litar olíuna.

Svartur litur er því ekki mælikvarði á hvort skipta þurfi um olíu. Það er skiptibilið í handbókinni — og olíuhæðin á kvarðanum — sem segir til um það.

Get ég notað bílaolíu á mótorhjólið?

Yfirleitt ekki. Flest fjórgengishjól eru með vothvolfskúplingu, þar sem kúplingin liggur í sömu olíu og vélin. Nútíma bílaolíur eru með núningsminnkandi efnum sem geta gert kúplinguna hála svo hún slái.

Leitaðu að JASO MA eða MA2 á brúsanum. JASO MB er aftur á móti ætluð hjólum með þurrkúplingu eða sjálfskiptingu — og tvígengisvélar þurfa sérstaka tvígengisolíu (JASO FC eða FD), aldrei venjulega vélarolíu.

Finndu réttu olíuna

Olíuráðgjafinn gefur þér seigju, staðal og vottanir fyrir þína vél — eða hringdu og við flettum því upp með þér.

Sími 530 5900