BOSCH

Bosch fyrirtækið í Stuttgart hefur framleitt íhluti í bifreiðar frá árinu 1886.

Lengi vel var heimamarkaðurinn sterkasta vígið fyrir þær vörur sem Bosch var að framleiða fyrir bílaframleiðendur og bílaverkstæði.

Þær nýjungar sem Bosch hefur kynnt til sögunnar í seinni tíð og eru orðin staðalbúnaður hjá mörgum framleiðendum eru m.a. skriðvörn (ESP),   innspýtingar fyrir diesel bifreiðar (Common Rail), leiðsögukerfi (Navigation), hraðastýringu með skynjurum (adaptive cruise control) nætursjón og margt fleira.

Bosch framleiðir í dag mikið úrval af skynjurum fyrir allar bifreiðar sem nýtast t.d. til að fylgjast með hraða, snúningshraða, þrýstingi, hljóðum, loftpúðaskynjara og fleiri þættir eru einnig stýrðir að hluta til með Bosch skynjurum.

Bilanagreiningartölvur eru sérgrein hjá Bosch enda skrifar fyrirtækið hugbúnað fyrir fjölmörg bílafyrirtæki sem notaður er til að vakta vélbúnað og rafkerfi bifreiða.

Næsta kynslóð bifreiða verður vafalaust sjálfkeyrandi að stórum hluta og þar er Bosch þegar í fremstu röð með þúsundir verkfræðinga að störfum til að sinna þessari þróun eingöngu.

Bosch er stærsta fyrirtæki heims sem ekki er skráð á hlutabréfamarkað og er með yfir 400.000 starfsmenn um allan heim.

Það er greypt inní stefnu félagsins að sinna vöruþróun umfram allt annað og þess vegna hefur Bosch verið í fararbroddi í bílgreininni í 70 ár.

 


BOSCH
BOSCH SpíssBOSCH
Spíss

BOSCH 0 445 110 543 er innspýtingarspíss sem skammtar eldsneyti inn í vélina.

Vnr: 0445110543
98.842 kr.
Setja í körfu
BOSCH SpíssBOSCH
Spíss

BOSCH 0 445 110 266 er innspýtingarspíss sem skammtar eldsneyti inn í vélina.

Vnr: 0445110266
Sjá nánar
Spíss HyundaiBOSCH
Spíss Hyundai

Bosch 0 445 115 045 er Common Rail eldsneytisspíss fyrir dísilvélar. Spíssinn sér um nákvæma innspýtingu eldsneytis beint…

Vnr: 0445115045
24.900 kr.
Setja í körfu
BOSCH SpíssBOSCH
Spíss

BOSCH 0 986 435 441 er innspýtingarspíss sem skammtar eldsneyti inn í vélina.

Vnr: 0986435441
72.105 kr.
Setja í körfu