Audurra

Audurra er fylgivörumerki Axalta fyrir réttinga- og lakkverkstæði. Undir því eru vörurnar sem notaðar eru í kringum sjálfa lökkunina: slípivörur, límbönd og afmörkunarfilmur, blöndunarbollar og lok, lakksíur, hreinsi- og rykklútar, úðakútar og hlífðarfatnaður. Axalta kynnti merkið árið 2018 og það fylgir lakkkerfunum Cromax, Spies Hecker og Standox.

Slípivörurnar eru settar upp í röð frá A til E eftir kornastærð, þannig að verkstæði kemst af með fá en rétt skref frá grófslípun yfir í fínpússun fyrir lakk. Í úrvalinu hjá okkur eru meðal annars Blue Ceramic slípiskífur og hefilpappír á rúllum, Flex Foam skífur með svampbaki fyrir mótaða og sveigða fleti, Superior málningarlímband sem þolir 130 °C og Fine Line afmörkunarbönd í breiddum frá 3 mm upp í 12 mm fyrir skarpar línur og marglita útfærslu.

Vörulisti Audurra er aðgengilegur á Vörulistar og vörurnar eru á lager í Skeifunni 2. Hringdu í 530 5900 ef þig vantar eitthvað úr línunni sem sést ekki hér að neðan.

Audurra