
Sealey TST001 er stafrænn loftmælir fyrir samhæfa dekkjaventla. Snúanlegur haus og hraðlosun auðvelda aðkomu við ventil og gúmmíhlíf…
Loftpressa knýr loftkerfi verkstæðisins: loftverkfæri, sprautukönnur, sandblástur og dekkjavinnu. Hjá Poulsen færðu skrúfuloftpressur frá AirHorse sem afkasta frá 750 upp í 2.300 lítra á mínútu við 8 bör, ásamt loftpressuolíu og búnaði fyrir dekkjaþjónustu.
Skrúfuloftpressur henta þar sem loft er notað mikið og samfellt, til dæmis á bílaverkstæðum, réttingarverkstæðum og í iðnaði. Þær eru hljóðlátari en stimpilpressur og þola lengri samfellda keyrslu.
Leggðu saman loftnotkun þeirra verkfæra sem eiga að ganga samtímis, í lítrum á mínútu, og veldu pressu sem skilar meira en því. Athugaðu líka vinnuþrýsting og rafmagnstengingu.
Í flokknum eru einnig loftdælur, loftmælar og loftbyssur fyrir dekk. Minni 12V loftdælur eru undir loftdælum fyrir bíla og jeppa og olía á pressuna undir loftpressuolíu.

Sealey TST001 er stafrænn loftmælir fyrir samhæfa dekkjaventla. Snúanlegur haus og hraðlosun auðvelda aðkomu við ventil og gúmmíhlíf…