
ColorMatic Plastic Cleaner er hreinsiefni fyrir alla plasthluti í bílum og er ætlað til að þrífa plastið áður…
Sprunginn stuðari, brotin festing eða rifin hlíf þarf ekki alltaf að endurnýja. Með réttum búnaði má gera við flesta plasthluti í bílnum. Hér finnur þú plastviðgerðarsett, plastsuðustafi, hitahefti, tveggja þátta plastlím og spartl fyrir plast.
Plastviðgerðarsett frá Sealey, ýmist hlaðanleg eða fyrir 230V, bræða hitahefti inn í plastið aftan frá og styrkja sprunguna. Heftin fást í nokkrum gerðum (U, V, M og Wave) og þykktum. Plastsuðustafir fást fyrir algengustu plastgerðirnar: PP, PE, ABS og PS. Plastgerðin er yfirleitt merkt innan á hlutnum, til dæmis >PP<.
Tveggja þátta pólýúretanlím frá 4CR endurbyggir brotin horn og festingar, og trefjamotta frá Colad styrkir viðgerðina. Áður en málað er, er spartlað með plastspartli og grunnað með plastgrunni.
Meira efni í réttingavinnu finnur þú undir lími, kítti og spartli og slípivörum.

ColorMatic Plastic Cleaner er hreinsiefni fyrir alla plasthluti í bílum og er ætlað til að þrífa plastið áður…

Spartl fyrir plastviðgerðir 425 gr.