Scotch-Brite Bristle Disc hentar vel til yfirborðshreinsunar á ýmsa fleti, meðal annars til að hreinsa þykkt lag af málningu, ryði, lími, gúmmí o.fl.. Hentar einnig vel til hreinsunar á suðu sem og mislitar sem verður við suðu. Kemur í staðinn fyrir vírbursta og aðra málmbursta sem gætu skaðað yfirborðið sem verið er að slípa.
Scotch-Brite Bristle Disc BD-ZB er heilsteypt stykki með M14 gengjum til festingar. Víbrar mikið minna við notkun en til dæmis vírburstar og slíkt.
Hægt er að fá þessa bursta í þremur útgáfum:
- Grófleiki P50 – Grænn að lit
- Grófleiki P80 – Gulur að lit
- Grófleiki P120 – Hvítur að lit
Stærðirnar á diskunum er 115 mm og með M14 (gengja), mesti snúningur RPM 12000