MOTIP

Kompakt silver metallic 12 ml

Vörunúmer 048 955440
Verð
2.269 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Silfur metallic. MOTIP Kompakt Touch-Up blettalakk, 12 ml, með áföstum pensli. Blandað eftir 19 upprunalegum bílalitum frá 14 bílframleiðendum. MOTIP-vörunúmer 955440. Fyrir grjótkast og litlar rispur.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer048 955440 Strikamerki8711347923144 Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

MOTIP Kompakt Touch-Up. Silfur metallic, 12 ml

Blettalakk í 12 ml túpu með áföstum pensli. Það er ætlað í grjótkast, litlar rispur og aðrar smáskemmdir þar sem engin ástæða er til að kaupa heilan brúsa af lakki. Lakkið þornar hratt, fyllir vel og heldur lit og gljáa.

Þessi túpa ber MOTIP-vörunúmerið 955440. Hún er blönduð eftir 19 upprunalegum bílalitum frá 14 bílframleiðendum. Finndu litakóðann á bílnum þínum í töflunni hér fyrir neðan. Passi hann við töfluna er þetta rétta túpan.

KOMPAKT CAR PAINT silver metallic 12 ml. Sýnishornið er til viðmiðunar. Skjár gefur ekki rétta mynd af lakki.

Bílalitir sem þessi túpa passar á

Bílaframleiðandi Litakóði Heiti litarins Árgerðir
ALFA ROMEO 843 Beige Champagne Met. 2C 1982–1987
AUDI A7V Polarsilber Met. 2C 1983–1989
AUDI LA7V Polarsilber Met. 2C 1983–1989
AUDI Z5 Polarsilber Met. 2C 1983–1989
BMW 139 Bronzitbeige Met. 2C 1982–1990
FIAT 685 Gris Bruma Met. 1977–1980
FORD AMERICA I Castillian Gold Met. 1962–1963
FORD AMERICA M1459 Castillian Gold Met. 1962–1963
GENERAL MOTORS WA837K Warm Nickel Met.2C 2003
HONDA YR-521M Topaz Silver P. 2C 1998–2002
HYUNDAI GT Gold Topaz Met. 2C 1982–1987
INFINITI JJ0 Mint Frost P. Met. 2C 1993–1994
LANCIA-AUTOBIANCHI 506 Golden White Met. 2C 1994–1998
NISSAN CH2 Light Gold P. 2C 1989–2005
NISSAN JJ0 Bamboo Mist Met. 2C 1990–1997
SUZUKI Y26 Warm Silver Met. 2C 1995–2001
TOYOTA 566 Beige Met. 2C 1986–1988
TOYOTA UCAA6 Silver Met. 2C 1997–2000
VOLKSWAGEN 3039 Polarsilber Met. 2C 1983–2003

Hvernig finn ég litakóðann á bílnum mínum?

Litakóðinn er á bílnum sjálfum, á límmiða eða plötu frá framleiðandanum. Tveir bílar geta litið eins út en borið sinn hvorn kóðann, því framleiðendur skipta um lakk milli árgerða. Þess vegna dugar ekki að velja lit eftir útliti.

Algengustu staðirnir eru:

  • Á stafnum við ökumannshurðina, þar sem hurðin lokast.
  • Undir vélarhlífinni, oft á þverbita við vatnskassann.
  • Í farangursrýminu, undir gólfmottunni eða við varadekkið.
  • Í hanskahólfinu eða í þjónustubókinni.

Kóðinn er yfirleitt tveir til fjórir stafir, blanda af bókstöfum og tölum. Hann stendur gjarnan við orð á borð við Paint, Color, Farbe eða Lack. Finnirðu hann ekki getur þú leitað eftir bílmerki og árgerð í litaleitinni.

Undirvinna

Undirvinnan ræður því hvernig blettunin kemur út.

  1. Þvoðu svæðið og náðu allri fitu, tjöru og vaxi af. Lakk festist ekki á óhreinu yfirborði.
  2. Hreinsaðu lausar lakkflögur og ryð úr sárinu. Ryð sem verður eftir undir lakkinu heldur áfram að vinna.
  3. Slípaðu brúnirnar á sárinu mjúkar svo blettunin myndi ekki kant.
  4. Grunnaðu beran málm. Grunnurinn er það sem lakkið loðir við.
  5. Þurrkaðu rykið af með örtrefjaklút rétt áður en þú lakkar.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Fjarlægðu laust lakk og ryð úr sárinu og hreinsaðu það vel.
  2. Yfirborðið á að vera hreint, þurrt og fitulaust.
  3. Túpan á að vera við stofuhita. Besta vinnsluhitastigið er 10–25 °C.
  4. Hristu túpuna í tvær mínútur fyrir notkun og prófaðu litinn á földum stað.
  5. Berðu lakkið á í nokkrum þunnum lögum fremur en einu þykku.
  6. Bestur árangur næst með því að leggja glæru yfir að lokum.
  7. Þurrktíminn ræðst af hita, rakastigi og þykkt lakksins.

Lestu alltaf leiðbeiningarnar á umbúðunum áður en þú byrjar og farðu eftir þeim.

Litbrigði undir sama kóða

Sumir litakóðar eiga sér fleiri en eitt litbrigði. Bílframleiðendur kaupa lakk frá mismunandi birgjum milli framleiðslulota, svo sami kóði getur verið örlítið mismunandi á litinn. Munurinn er lítill en getur sést. Prófaðu alltaf á földum stað fyrst, eða komdu við hjá okkur og berðu túpuna saman við litakortið.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,03 kg
Framleiðandi

Magn

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
MOTIP
Skoða allt →