MOTIP

Kompakt red high gloss 12 ml

Vörunúmer 048 941470
Verð
2.269 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Rauður gljáandi. MOTIP Kompakt Touch-Up blettalakk, 12 ml, með áföstum pensli. Blandað eftir 83 upprunalegum bílalitum frá 31 bílframleiðendum. MOTIP-vörunúmer 941470. Fyrir grjótkast og litlar rispur.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer048 941470 Strikamerki8711347920280 Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

MOTIP Kompakt Touch-Up. Rauður gljáandi, 12 ml

Blettalakk í 12 ml túpu með áföstum pensli. Það er ætlað í grjótkast, litlar rispur og aðrar smáskemmdir þar sem engin ástæða er til að kaupa heilan brúsa af lakki. Lakkið þornar hratt, fyllir vel og heldur lit og gljáa.

Þessi túpa ber MOTIP-vörunúmerið 941470. Hún er blönduð eftir 83 upprunalegum bílalitum frá 31 bílframleiðendum. Finndu litakóðann á bílnum þínum í töflunni hér fyrir neðan. Passi hann við töfluna er þetta rétta túpan.

KOMPAKT CAR PAINT red high gloss 12 ml. Sýnishornið er til viðmiðunar. Skjár gefur ekki rétta mynd af lakki.

Bílalitir sem þessi túpa passar á

Bílaframleiðandi Litakóði Heiti litarins Árgerðir
AMC 3B Sebring Red 1983–1987
BLMC 748 Signal Red 2C 1987–1996
CHRYSLER PR3 Safari Red 1983–1985
CITROEN AC424 Rouge De Rio/Rojo Rio 1970–1976
DAF 1063 Hoyer Rood 1995
DAIHATSU R04 Disco Red 1980–1983
FIAT 140 Rosso Corsa 1988–1993
GENERAL MOTORS 76L Bright Red 1988–1993
HYUNDAI JA Shine Red 2C 2006–2012
INNOCENTI 137 Rosso 1994–1997
JAGUAR 748 Signal Red 2C 1987–1996
LADA 110 Rot 1975–2000
MAZDA RH Sunrise Red 1970–1995
MITSUBISHI AC10647 New Red 2C 1980–1983
NISSAN 013 Regatta Red 2C 1981–1990
OPEL 535 Karminrot 1981–1989
PIAGGIO 137 Rosso 1993–2009
PORSCHE 022 Bahiarot 1969–1970
PROTON R20 Red 1995–2000
RAL GLÄNZEND / GLOSSY 3001 Signalrot
RENAULT RVI 032 Rouge Record 1975–1982
ROVER COE Flame Red 1988–1995
SAAB 278 Laser Red 2000–2012
SCANIA 1396257 Red 1997
SUBARU/FUJI 547 Flare Red 1984–1986
SUZUKI 34P Bernard Red 1987
TOFAS 854 Nar Cicegi 1979–1988
TOYOTA 391 Passing Red 1980–1998
VAUXHALL 76L Carmine Red 1983–1989
VOLKSWAGEN L30E Bahiarot 1969–1973

Taflan sýnir 30 af 83 litum. Litaleitin efst á flokkasíðunni Kompakt Touch-Up leitar í þeim öllum. Sláðu inn bílmerki og litakóða og hún segir þér hvaða túpa á við.

Hvernig finn ég litakóðann á bílnum mínum?

Litakóðinn er á bílnum sjálfum, á límmiða eða plötu frá framleiðandanum. Tveir bílar geta litið eins út en borið sinn hvorn kóðann, því framleiðendur skipta um lakk milli árgerða. Þess vegna dugar ekki að velja lit eftir útliti.

Algengustu staðirnir eru:

  • Á stafnum við ökumannshurðina, þar sem hurðin lokast.
  • Undir vélarhlífinni, oft á þverbita við vatnskassann.
  • Í farangursrýminu, undir gólfmottunni eða við varadekkið.
  • Í hanskahólfinu eða í þjónustubókinni.

Kóðinn er yfirleitt tveir til fjórir stafir, blanda af bókstöfum og tölum. Hann stendur gjarnan við orð á borð við Paint, Color, Farbe eða Lack. Finnirðu hann ekki getur þú leitað eftir bílmerki og árgerð í litaleitinni.

Undirvinna

Undirvinnan ræður því hvernig blettunin kemur út.

  1. Þvoðu svæðið og náðu allri fitu, tjöru og vaxi af. Lakk festist ekki á óhreinu yfirborði.
  2. Hreinsaðu lausar lakkflögur og ryð úr sárinu. Ryð sem verður eftir undir lakkinu heldur áfram að vinna.
  3. Slípaðu brúnirnar á sárinu mjúkar svo blettunin myndi ekki kant.
  4. Grunnaðu beran málm. Grunnurinn er það sem lakkið loðir við.
  5. Þurrkaðu rykið af með örtrefjaklút rétt áður en þú lakkar.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Fjarlægðu laust lakk og ryð úr sárinu og hreinsaðu það vel.
  2. Yfirborðið á að vera hreint, þurrt og fitulaust.
  3. Túpan á að vera við stofuhita. Besta vinnsluhitastigið er 10–25 °C.
  4. Hristu túpuna í tvær mínútur fyrir notkun og prófaðu litinn á földum stað.
  5. Berðu lakkið á í nokkrum þunnum lögum fremur en einu þykku.
  6. Bestur árangur næst með því að leggja glæru yfir að lokum.
  7. Þurrktíminn ræðst af hita, rakastigi og þykkt lakksins.

Lestu alltaf leiðbeiningarnar á umbúðunum áður en þú byrjar og farðu eftir þeim.

Litbrigði undir sama kóða

Sumir litakóðar eiga sér fleiri en eitt litbrigði. Bílframleiðendur kaupa lakk frá mismunandi birgjum milli framleiðslulota, svo sami kóði getur verið örlítið mismunandi á litinn. Munurinn er lítill en getur sést. Prófaðu alltaf á földum stað fyrst, eða komdu við hjá okkur og berðu túpuna saman við litakortið.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,03 kg
Framleiðandi

Magn

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
MOTIP
Skoða allt →